Rotaryklúbbur Keflavíkur: Hluti af góðum hóp
Um þrjátíu til fjörutíu félagar af 1,2 milljón manna hreyfingu hittast reglulega á Flughótelinu í Keflavík. Þau eru hluti af 106 ára gömlum félagsskap sem heitir Rótaryý, og heldur í dag úti starfsemi í yfir 200 löndum víðsvegar um heiminn. Í snjónum og kuldanum milli jóla og nýárs kippa sjö félagar klúbbsins sér ekki upp við að hittast til að segja okkur frá Rótarý og það er greinilegt að félagsskapurinn skiptir þau miklu máli.
Paul P. Harris stofnaði Rótarý í Chicago í Bandaríkjunum snemma á síðustu öld. Hann vildi skapa félagsskap fólks í hinum ýmsu starfsgreinum sem hefði þann vinalega anda sem hann hafði upplifað í smábænum þar sem hann ólst upp. Rótarý hefur alltaf verið hugsað þannig að það myndi tengslanet milli ólíkra starfsstétta. Nafnið kemur af því að fundum var róterað á milli skrifstofa félagsmanna.
Hvað er það sem dregur fólk að Rótarý?
Hjördís Árnadóttir var fyrsta konan í Rótarýklúbbi Keflavíkur: „Það sem gerir Rótarý svo skemmtilegt, fyrir utan tengslanetið, er að ef þú ert orðinn Rótarý félagi einhvers staðar, þá geturðu gengið inn í hvaða klúbb í heiminum sem er og farið á fund.“ Kristinn Jóhannesson var forseti Rótarýklúbbs Keflavíkur á síðasta starfsári og hann segir það einmitt mjög skemmtilegt að fara á fundi erlendis.
Jónína Ágústsdóttir segir það opna dyrnar að samfélaginu að ganga í Rótarý. Hún flutti sjálf til Reykjanesbæjar fyrir nokkrum árum og Kristinn hefur sömu sögu að segja: „Tilgangurinn með að fara í Rótarý var að komast inn í samfélagið, af því ég var aðflutt. Ég varð að gera eitthvað til að vera ekki „bara aðflutt“ og það svínvirkaði að ganga í Rótarý klúbbinn“. Það er greinilegt á Rótarý fólki að það myndast sterk tengsl meðal félaga. „Manni þykir vænt um hópinn sinn,“ segir Hjördís.
Jón Axelsson og Agnar Guðmundsson eru sammála um að það sem hafi dregið þá að Rótarý, og sem er eitt aðaleinkenni starfsins, séu fyrirlestrarnir. Á hvern fund fá þau fyrirlesara sem fundnir eru í tengslaneti félaga. Jón: „Maður fær það sem er að gerast beint í æð. Maður fær ekki almennt tækifæri til að hitta margt af þessu fólki.“
Fjölbreytileikinn er fólki líka hugleikinn. Fólk kemur úr ólíkum áttum og er á ólíkum aldri. Yngsti félaginn í klúbbnum, Ragnheiður Sif Gunnarsdóttir, kann að meta að aldursbilið er breitt - félagar í klúbbnum eru frá rúmlega þrítugu og Jóhann Pétursson, elsti félaginn er 91 árs og stofnfélagi í klúbbnum.
Fjölbreytileikinn sýnir sig bæði í félögunum og fyrirlesurunum. Ragnheiður heldur áfram: „Fyrirlestrarnir eru oft um hluti sem maður myndi aldrei kynna sér sjálfur. Maður er oft í einsleitum hóp dagsdaglega en maður verður sterkari einstaklingur þegar maður kynnist fjölbreyttari heimi. Maður kynnist hafnarmálastjórum, hagstofustjórum, mótorhjólafólki, ráðherrum og vísindamönnum... þetta er svona skóli lífsins sem maður les ekki í einhverri bók. Margir fyrirlestrarnir myndu sóma sér vel í virtustu háskólum“, segir Jón Axels. Hann segir þetta líka gott tækifæri fyrir mann sjálfan að þjálfa sig í að standa upp og tala fyrir fólk. Kristinn tekur undir það og segist hafa verið mjög feiminn þegar hann byrjaði í klúbbnum en að félagsstarfið hafi eflt hann mikið í því að standa upp og segja sína skoðun.
Þau segja félagsskapinn óformlegan, það sé létt yfir þessu og ekkert voðalega hátíðlegt. Auk funda sé t.d. farið í ýmsar skemmtilegar ferðir, þar sem makar og fjölskyldan eru boðin með, gróðursetningar, grill, jeppaferðir og fleiri skemmtilegheit. Ég spyr þau hvort maður sé svo dreginn í stjórn um leið og maður mætir. Nei, það er ekki verið að draga mann í stjórn um leið og maður rekur inn tærnar. Starfsaldur ræður til um stjórnarstörf og enginn þarf að taka neitt að sér sem hann er ekki tilbúinn til. Það er heldur ekkert sölustarf. Rótarý styrkir ýmis góð málefni, en það er gert með hóflegum félagsgjöldum.
Rótarý starfar samkvæmt þjónustuhugsjón, eða „Service Before Self“. Rótarý styrkir ýmis verkefni og tekur m.a. þátt í alþjóðlegu verkefni með Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni og fleirum til að útrýma lömunarveiki. Rótarý veitir einnig styrki til afburða tónlistarfólks og námsstyrki. Alþjóðahreyfingin hefur m.a. styrkt 10 íslenskar konur til meistaranáms í friðarfræðum. Félagarnir eru sammála um að það gefi þeim heilmikið að gefa af sér með þessum hætti. Rótarýklúbbur Keflavíkur er einnig stofnandi og verndari Krabbameinsfélags Suðurnesja og Björgin, geðræktarmiðstöð Suðurnesja, hefur einnig notið stuðnings klúbbsins.
Rótarý stendur einnig fyrir ýmsum skiptiprógrömmum og heimsóknum fólks á milli heimshluta. Tilgangurinn með þeim hluta starfsins er að minnka fordóma í heiminum með alþjóðlegum samskiptum.
Fyrir hverja er Rótarý?
Rótarý er fyrir alla sem hafa áhuga, segja þau. Þau segjast vera að átta sig á að fólk viti kannski ekki nóg um starfið og þess vegna langar þau að vekja athygli á því og gefa fólki tækifæri til að kynna sér það. Félagar geta boðið með sér á fundi, þannig að ef fólk þekkir einhvern í klúbbnum er um að gera að fá að koma með við tækifæri. Klúbburinn er einnig með Facebook síðu (facebook.com/RotaryKeflavikur sem er um að gera að smella „like“ á en einnig getur fólk haft samband við Jón Björn Sigtryggsson, forseta klúbbsins, ef það hefur áhuga á að kynna sér starfsemina. Síminn hjá honum er 897 8355 og einnig má senda honum tölvupóst: [email protected].
Efsta mynd: f.v.: Jón Björn Sigtryggsson, forseti Rotaryklúbbs Keflavíkur, Hjördís Árnadóttir, Kristinn Jóhannsson, Ragnheiður Sif Gunnarsdóttir, Agnar Guðmundsson og Jónína Ágústsdóttir. Á hinum myndunum er Jón Axelsson, Ragnheiður Sif og Jónína.