HSS
HSS

Mannlíf

Rokksuð - rokktónleikar Tónlistarskólanna á Suðurnesjum
Föstudagur 23. janúar 2009 kl. 14:22

Rokksuð - rokktónleikar Tónlistarskólanna á Suðurnesjum



Tónlistarskólinn í Garði, Tónlistarskólinn í Grindavík, Tónlistarskóli Reykjanesbæjar og Tónlistarskóli Sandgerðis efna til rokktónleika föstudaginn 23. janúar n.k. Tónleikarnir verða í Samkomuhúsinu í Garði og hefjast kl. 20.00. Fram koma alls 6 rokkhljómsveitir skipaðar nemendum tónlistarskólanna sem allir eru við nám í skólunum og eru hljómsveitirnar liður í námi þeirra.

Tónlistarskólarnir á Suðurnesjum hafa í gegnum tíðina verið í allnokkru samstarfi bæði hvað varðar tónleikahald og námskeið fyrir kennara skólanna. Tónleikarnir RokkSuð eru liður í þessu farsæla samstarfi, en tónlistarskólarnir hafa áður staðið fyrir slíkum tónleikum og hafa þeir alltaf verið mjög vel sóttir.

Suðurnesjamenn eru eindregið hvattir til að mæta á tónleikana í Samkomuhúsinu í Garði föstudaginn 23. janúar og eins áður segir, þá hefjast þeir kl. 20.00. Aðgangur er ókeypis og eru allir hjartanlega velkomnir.



Ljósmynd af vefnum www.garður.is
Bílakjarninn
Bílakjarninn