Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Roðagyllum heiminn
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
fimmtudaginn 25. nóvember 2021 kl. 11:14

Roðagyllum heiminn

Sextán daga átak gegn kynbundnu ofbeldi 2021.

Soroptimistar um allan heim munu í ár. eins og mörg undanfarin ár, slást í för með um 6.000 samtökum í 187 löndum sem leidd eru af Sameinuðu þjóðunum til að vekja athygli á kynbundnu ofbeldi gegn stúlkum og konum með þátttöku  í sextán daga átakinu #roðagyllumheiminn, #orangetheworld. 

Roðagyllti liturinn sem er litur átaksins táknar bjartari framtíð án ofbeldis gegn konum og stúlkum. Átakið sem nú fer fram í þrítugasta sinn hefst þann 25. nóvember á alþjóðlegum baráttudegi gegn ofbeldi gagnvart konum og stúlkum og því lýkur þann 10. desember á hinum alþjóðlega mannréttindadegi Sameinuðu þjóðanna sem jafnframt er dagur Soroptimista.  Markmið sextán daga átaksins er að beina athyglinni að alvarleika kynbundins ofbeldis, fræða almenning og hvetja til að ofbeldið verði stöðvað. Til þess þarf vitundarvakningu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ein af hverjum þremur konum hafa verið beittar ofbeldi á lífsleiðinni og er það eitt útbreiddasta mannréttindabrot í heimi. Nærri 140 konur eru myrtar á hverjum degi af nánum fjölskyldumeðlimi. Um 15 milljónir núlifandi unglingsstúlkna, fimmtán til nítján ára, hafa verið beittar kynferðislegu ofbeldi. Konur eru 72% allra þeirra í heiminum sem hneppt eru í mansal og kynlífsþrælkun. 200 milljónir núlifandi stúlkna og kvenna hafa verið limlestar á kynfærum. Á hverri mínútu eru 23 barnungar stúlkur þvingaðar í hjónaband.

Sú hefð hefur skapast að ákveðið málefni verður í brennidepli  ár hvert. Áhersla íslenskra Soroptimista mun að þessu sinni beinast að stafrænu ofbeldi. Stafrænt ofbeldi fer fram gegnum tæki og tækni, svo sem síma, tölvu og samfélagsmiðla. Notkun á samfélagsmiðlum hefur aukist mikið undanfarin ár og sífellt fleiri konur og stúlkur eru áreittar, beittar ofbeldi, ofsóttar, niðurlægðar eða þeim ógnað gegnum þá. Með auknu aðgengi að stafrænum miðlum og útbreiðslu þeirra varð til ný og oft dulin nálgun á ofbeldi gegn konum og stúlkum þar sem oft er erfitt að rekja ofbeldið, verja sig gegn því og uppræta það. Það getur verið texti eða mynd með skilaboðum eða tölvupósti. Það er líka stafrænt ofbeldi ef einhver er að fylgjast með hvað þú gerir í símanum þínum og hvað þú gerir á netinu. Fólk sem verður fyrir stafrænu ofbeldi upplifir oft ótta, reiði, kvíða, þunglyndi og að vera ekki við stjórn á eigin lífi. Fólki finnst það ekki eiga neitt einkalíf, er líklegt til að einangra sig og upplifir hjálparleysi. Tíunda hver kona hafði orðið fyrir stafrænu ofbeldi fyrir heimsfaraldur Covid-19 en nú hefur hlutfallið hækkað mikið. 

Ýmislegt verður gert þessa sextán daga til að beina athygli að stafrænu ofbeldi. Íslenskir Soroptimistar, sem nú eru um 600 talsins í nítján klúbbum um allt land, munu vera sýnilegir meðal annars með því að klæðast roðagylltum lit, skrifa greinar í blöð og selja appelsínugul blóm eða annan varning. Byggingar í heimabyggð klúbba verða lýstar upp í roðagylltum lit og einnig sendiráð Íslands víða um heim.

„Líkt og fyrri ár, verða ýmsar byggingar hér á Suðurnesjum lýstar upp í roðagylltum lit (e. orange) og einnig ætlar Sigurjónsbakarí að selja snúða og kleinuhringi með appelsínugulu kremi til styrktar átakinu. Við vonum að Suðurnesjamenn styðji við verkefnið eins og undanfarin ár. Það væri líka gaman að sjá heimili skreyta með appelsínugulu,“ segir Þorkatla Sigurðardóttir, verkefnisstjóri hjá Soroptimistaklúbbi Keflavíkur.