Rockville Festival nær hámarki í kvöld
Rokkhátíðin Rockville Festival 2007 er í fullum gangi og nær hámarki í kvöld. Tónleikarnir fara fram á Paddy´s í Reykjanesbæ sem hefur verið þétt setinn undanfarin tvö kvöld.
Í gær komu fram hljómsveitirnar KARMAN LINE, CLIFF CLAVIN, LOKBRÁ, HOFFMAN, DR. SPOCK og TOMMYGUN.
Í kvöld hefjast lætin uppúr kl. 21 og er dagskráin sem hér segir:
21:15 – 21:45 KLAUS
22:00 – 22:30 VICKY POLLARD
22:45 – 23:15 HELLVAR
23:30 – 00:00 RHONDDA & RUNESTONES
00:15 – 00:45 JAN MAYEN
01:00 – 01:30 I ADAPT
Allir tónlistaráhugamenn eru hvattir til að láta sjá sig á tónleikunum, enda nokkrar bestu og kraftmestu sveitir landsins hér á ferð.
Vf-mynd/Þorgils: Hljómsveitin Cliff Clavin tók á því í gær.