Rob Schneider í Bláa Lóninu
Grínleikarinn góðkunni, Rob Schneider átti góðar stundir í Bláa lóninu síðdegis á fimmtudaginn. Auk þess að slaka á í Bláa lóninu fór kappinn í nudd og lét vel af allri þjónustu sem hann fékk í þessari perlu okkar Suðurnesjamanna. Meðfylgjandi mynd var tekin af Rob Schneider og blómarós úr Bláa lóninu sem færði honum hinn fræga Bláa lóns-kokteil, sem blandaður er þegar fræga gesti ber að garði.