R.H.B. (Rolf Hausbentner Band): Brandari sem fór úr böndunum
Hljómsveitin R.H.B. fagnar útgáfu fyrstu hljómplötu sveitarinnar með útgáfutónleikum á Ljósanótt en R.H.B. spilar hrátt og kraftmikið gítarrokk
Undanfarna mánuði hefur hljómsveitin Rolf Hausbentner Band verið að vinna að nýrri plötu sem inniheldur átta ný lög. Sem fyrr er um að ræða hrátt og kraftmikið gítarrokk. Víkurfréttir settust niður með einum af forspkökkum sveitarinnar.
„Þetta er fyrsta stóra platan. Við höfum áður gefið út fimm lög sem komu út undanfarin tvö til þrjú ár,“ segir Pálmar Guðmundsson, stofnandi og aðallagahöfundur hljómsveitarinnar R.H.B. (Rolf Hausbentner Band). Hann stofnaði hljómsveitina árið 2020 og var markmiðið einfalt – að semja og gefa út rokktónlist. Hljómsveitin hefur gefið út fimm lög og má nefna að eitt laga sveitarinnar var á lista Rásar 2 yfir bestu rokklög ársins 2023.
„Rétt fyrir áramót fórum við að huga að gerð stórrar plötu. Sú vinna teygðist aðeins þar sem við höfum m.a. verið staðsettir á hinum ýmsu landssvæðum, svona landfræðilegar áskoranir sem við þurftum að leysa – en heilt yfir gekk það mjög vel og núna erum við klárir með átta laga plötu sem kom út á stafrænu formi í byrjun þessarar viku.“
Pálmar segir að ferlið sé tvískipt. „Við gefum plötuna fyrst út stafrænt en síðan fer platan erlendis í frekari hljóðvinnslu og kemur út á vínil í nóvember.
Þessir tónleikar eru auðvitað hluti af þeirri vegferð sem við erum á og þeir gefa okkur tækifæri til að fá betri tilfinningu fyrir lögunum. Þetta er líka kostnaðarsamt ferli og tónleikarnir veita okkur tækifæri til að taka þessi næstu skref.“
Útgáfutónleikar í Bergi í Hljómahöll 5. september
Til þess að fagna stafrænni útgáfu plötunnar mun hljómsveitin halda tónleika í Bergi í Hljómahöll fimmtudaginn 5. september. Pálmar segir að sveitin sé einstaklega vel mönnuð; Smári Guðmundsson og Ólafur Þór Ólafsson spila á gítara, Ólafur Ingólfsson á trommur, Hlynur Þór Valsson syngur og spilar á kassagítar og Birta Rós Sigurjónsdóttir syngur og spilar á bassa. „Við erum í raun og veru með tvo bassaleikara. Ég spila á bassa sjálfur og við notum aukabassann til að bæta við trukki á völdum augnablikum í tónlistinni og það hefur reynst vel. Það tekur í og það er erfitt að sitja undir því lengi en við förum varlega með þetta – það gefur aukakraft og það er það sem við erum að horfa í með þessu.“
Þess má geta að Grétar Lárus Matthíasson syngur tvö lög á plötunni en hann verður hins vegar fjarri góðu gamni á tónleikunum. „Þetta er kraftmikil hljómsveit, vel rútínerað band sem hefur spilað lengi saman og er ég mjög ánægður með þennan flotta hóp,“ sagði Pálmar sem iðar greinilega í skinninu eftir því að stíga á svið.
„Varðandi Ljósanóttina þá erum við rosalega ánægðir að vera hluti af þessari tónlistarhátíð – Ljósanótt er auðvitað risastór tónlistarhátíð, gríðarlega mikil lyftistöng fyrir sveitarfélagið og ofsalega vel heppnuð. Að við séum hluti af þessari dagskrá er auðvitað bara frábært.“
Nafnið byrjaði sem einkahúmor
Nafnið á sveitinni, Rolf Hausbentner Band, hvernig er það tilkomið?
Nú hlær Pálmar. „Í stuttu máli sagt er það kannski brandari sem fór úr böndunum. Það er kannski einfaldasta útskýringin á því. Nafnið var sett á bandi og sitt sýndist hverjum þegar það var farið af stað. Við höfum notað skammstöfunina, R.H.B., meira í seinni tíð.“
En hver er, eða var, Rolf Hausbentner?
„Upphaflega var þetta þannig að ég var Rolf Hausbentner. Þegar við byrjuðum á þessu voru einhverjir okkar með svona alias eða leyninöfn. Það grín eldist ekkert svakalega vel, var fyndið í einhvern smá tíma innan ákveðinnar grúbbu – en svo fór manni að hætta að finnast þetta fyndið og þá hættum við bara að nota þessi nöfn. En hver veit nema við grípum í þau aftur?“