Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Reynir að hjálpa öðrum og hrósa í desember
Eyþór Ingi Einarsson er meistaranemi í sálfræði við Kaupmannahafnarháskóla og styrktar- og þrekþjálfari.
Sólborg Guðbrandsdóttir
Sólborg Guðbrandsdóttir skrifar
miðvikudaginn 25. desember 2019 kl. 06:00

Reynir að hjálpa öðrum og hrósa í desember

Hvað ætlar þú að gera það sem eftir lifir desembermánaðar? 

„Ég ætla að slaka á og njóta hátíðanna með fjölskyldunni á Tenerife.“

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Hvað finnst þér það besta við þennan tíma?

„Gæðastundir með fjölskyldunni og góður matur.“

Hver er þín uppáhaldsjólahefð?

„Í dag er það líklega jólaboðin. Þar fæ ég að hitta skyldmenni sem ég sé sjaldan. Því miður mun ég missa af þeirri hefð í ár.“

Ætlar þú að láta gott af þér leiða í desember? Ef svo er, hvernig? 

„Ég vona að mín hegðun muni leiða gott af sér í desember eins og alla aðra mánuði. Ég mun sérstaklega einblína á að gefa mér tíma fyrir fjölskyldu og vini, rétta fólki hjálparhönd og hrósa öðrum.“

Fyrir hvað ertu þakklátur?

„Heilsuna mína, fólkið í kringum mig og tækifærin sem ég hef fengið.“