Reykjanesskaginn í topp tíu sem óþekkti rómantíski ferðamannastaðurinn - taktu þátt í kosningu
USA TODAY tilkynnti nú í vikunni topp 20 staði sem keppa nú um að vera besti óþekkti eða „under-the-radar“ rómantíski staðurinn í heiminum. Reykjanesskaginn er einn af þeim stöðum sem tilnefndur er og keppir um að vera einn af þeim tíu bestu.
Á síðu USA TODAY er hægt að taka þátt í kosningunni sem stendur yfir í fjórar vikur og lýkur henni þann 3. ágúst n.k. Hver og einn getur kosið einu sinni á dag fram að lokadegi kosningarinnar. Sigurvegarar munu verða tilkynntir þann 7. ágúst.
Ýttu hér til að taka þátt í kosningunni.