Reykjanesgönguferðir ganga í Húshólma
Á morgun, miðvikudaginn 20. júni ganga Reykjanesgönguferðir í Húshólma. Rannveig L. Garðarsdóttir sér um leiðsögn. Lagt af stað með rútu kl 19:00 frá Vesturbraut 12 Reykjanesbæ genginn verður slóði frá Suðurstrandarvegi framhjá Borgarhólum beygt útí Ögmundarhraunið og gengið að bæjarrústum sem eru umluktar hrauni. Þar má sjá hvernig Ögmundarhraun rann í kringum bæinn og yfir hann að hluta. Gengin verður sama leið til baka.
Gangan tekur u.þ.b.2 - 3 klst. Kostnaður kr 1000 fyrir rútufargjald. Gangan ætti að vera við allra hæfi og allir velkomnir. Göngufólki af Höfuðborgarsvæðinu er bent á að hægt er að koma í rútuna við Grindavíkurafleggjara en þá þarf að hringja í leiðsögumann í síma 893 8900 til að gera ráð fyrir sætum í rútunni.