Reykjanesbær vill viðurkenna fjölskylduvæn fyrirtæki og stofnanir
Reykjanesbær óskar eftir tilnefningum frá starfsmönnum fyrirtækja og stofnanna sem telja að fjölskyldustefna sé viðhöfð á þeirra vinnustað. Tilnefningar þurfa að hafa borist eigi síðar en 10. ágúst n.k. Þar komi fram í hverju fjölskyldustefna fyrirtækisins er fólgin og hvernig henni er framfylgt.
Þetta er í fjórða sinn sem viðurkenningar af þessu tagi eru veittar og þegar hafa átta fyrirtæki og stofnanir fengið viðurkenningar. Viðurkenningar fara formlega fram með athöfn í Duus húsum 30. ágúst n.k.
Tilnefningar berist til Fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbæ, merktar FJÖLSKYLDUVÆN FYRIRTÆKI. Einnig má senda tilnefningar með netpósti á netfangið [email protected]. fyrir 10. ágúst 2007.