Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Reykjanesbær keppir í Útsvari
Útsvarslið Reykjanesbæjar í ár, Kristján Jóhannsson, Helga Sigrún Harðardóttir og Grétar Þór Sigurðsson.
Föstudagur 1. desember 2017 kl. 12:06

Reykjanesbær keppir í Útsvari

Fyrsta viðureign Reykjanesbæjar í Útsvari, spurningakeppni sveitarfélaga, fer fram í kvöld, þann 1. desember. Lið Reykjanesbæjar skipa þau Grétar Þór Sigurðsson, nemi í listfræði en hann er þaulvanur keppandi í Útsvari, Helga Sigrún Harðardóttir, lögfræðingur og Kristján Jóhannsson, leigubílstjóri og leiðsögumaður. Kristján og Helga Sigrún eru nýir leikmenn í liði Reykjanesbæjar í ár.

Útsvar hefst kl. 20 á RÚV og eru þeir sem hafa áhuga á að vera gestir í sjónvarpssal velkomnir á meðan húsrúm leyfir en þurfa þó að vera mættir í síðasta lagi kl. 19:30.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024