Reykjanesbær býður í bílabíó
Í tilefni sumarkomu og til að létta lundina á fordæmalausum tímum er bæjarbúum boðið í bílabíó föstudaginn 1. maí. Tvær sýningar verða á malarplaninu á milli Ægisgötu og Hafnargötu 15 – 19. Sýningarnar verða á hágæða 16 m² LED skjá í samstarfi við Sonik og verður hljóðinu streymt í útvarpið í bílnum.
Klukkan 16 verður sýnd fjölskyldumyndin „Víti í Vestmannaeyjum“ og kl. 20 verður hin tímalausa klassík „Með allt á hreinu“ sýnd.
Bæjarbúar eru hvattir til að taka rúntinn og upplifa bíóstemningu eins og þá sem við höfum aðeins séð í bíómyndum. Nú er um að gera að poppa eða versla veitingar til að hafa með sér í bílinn og eiga saman skemmtilega stund með fjölskyldunni.
Fólk er hvatt til að mæta tímanlega þar sem raða þarf bílum upp undir stjórn Björgunarsveitarinnar Suðurnes. Sérstök athygli er vakin á að stærri bílar þurfa að vera aftastir á stæðinu til að skyggja ekki á útsýni og er fólk beðið að virða fyrirmæli gæsluaðila.