Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

  • Reykjanesbær býður aðgang að matjurtargörðum
    Matjurtargarður.
  • Reykjanesbær býður aðgang að matjurtargörðum
    Berglind Ásgeirsdóttir.
Mánudagur 18. maí 2015 kl. 07:00

Reykjanesbær býður aðgang að matjurtargörðum

 

Það er fátt ánægjulegra en rækta og borða sitt eigið grænmeti en það eru ekki allir sem búa svo vel að eiga matjurtargarð. Reykjanesbær kemur til móts við þann hóp með því að bjóða upp á aðgang að matjurtargörðum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Berglind Ásgeirsdóttir, garðyrkjufræðingur hjá Reykjanesbæ, segir að nú fari að renna upp rétti tíminn til að sá út sínu eigin grænmeti vilji fólk fá væna uppskeru í haust. „Við bjóðum upp á aðgang að tveimur matjurtargörðum, annars vegar í Grófinni, þar sem bærinn hefur lengi verið með matjurtargarð og nú einnig neðan við Seljudal í Innri Njarðvík, til að koma til móts við íbúa þar í grennd.“

Fólk kemur með sín eigin fræ og útsæði en hægt er að komast í góða mold til ræktunar við matjurtargarðana. „Að rækta sitt eigið grænmeti hefur margar kosti í för með sér, aðra en uppskera. Ræktun er bæði holl og góð útivera og tilvalið er að gera sáninguna að skemmtilegu fjölskylduverkefni í sumar,“ segir Berglind. 

Hægt er að panta sér reit í síma 420-3200 hjá Þjónustumiðstöð og þar eru einnig nánari upplýsingar.