Reykjanes göngudagskrá að hefjast
Sjöunda árið í röð sem boðið er boðið upp á metnaðarfulla göngudagskrá um Reykjanesið undir leiðsögn Rannveigar Garðarsdóttur leiðsögumanns.
Í boði verða alls 11 göngur á tímabilinu júní til ágúst. Um er að ræða léttar göngur í bland við erfiðari og lengri fjallgöngur. Í leiðalýsingu fyrir göngu-ferðirnar er tilgreint hvað hver ganga tekur langan tíma, erfiðleikastig og hvort göngu ljúki á sama stað og hún hófst á. Rúta mun fara með göngufólk í allar göngurnar. Áætlaður tími gerir ekki ráð fyrir ferðatíma til og frá göngustað sem getur verið breytilegur.
Í hverri göngu er tekin nestispása þar sem sagt er frá ýmsum fróðleik um nánasta umhverfi.
HS Orka hefur verið styrktaraðili frá upphafi og nú fjórða árið í röð með HS Veitum og Bláa Lóninu. Verkefnið er unnið í samvinnu og samstarfi við Víkurfréttir, Hópferðir Sævars, Björgunarsveitina Suðurnes, 66°N og Reykjanes GeoPark.
Fyrsta ganga sumrarsins verður 4. júní, Bláa Lónið - Arnarseturshraun.
Ekið verður með rútu að Bláa Lóninu þar sem byrjað verður með kynningu á dagskrá
sumarsins. Síðan verður gengið frá Bláa Lóninu um fallegan hraunstíg í Arnarseturshrauninu upp á Gíghæð þar sem skoðaðar verða vegavinnubúðir sem voru hlaðnar þegar gamli Grindavíkurvegurinn var lagður á fyrri hluta 20. aldar. Gangan tekur 2 – 3 klst.