Mannlíf

Réttir í Grindavík á morgun
Föstudagur 14. september 2018 kl. 09:41

Réttir í Grindavík á morgun

Réttað verður í Þórkötlustaðarétt í Grindavík á morgun, laugardaginn 15. september kl. 14:00. Réttirnar eru oftast vel sóttar af gestum og stundum má vart á milli sjá hvor hópurinn er fjölmennari, menn eða sauðfé. 
 
Gestir eru þó beðnir um að sýna tillitssemi við bændur og sauðfé og eru gestir í réttunum hvattir til að nýta sér göngustíga meðfram Austurvegi og Grindvíkingar beðnir um að skilja bílana eftir heima.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024