Rétti tíminn er núna
Móðir og þrjú börn hennar opna kaffihús í gamla Hljómvals-húsinu.
„Fyrir fimm árum fékk ég þá hugmynd að opna stað sem væri blanda af kaffihúsunum Mokka og Gráa kettinum og myndi opna snemma á morgnana. Þar gæti fólk fengið sér góðan kaffibolla, borðað morgunmat saman og spjallað um málefni hversdagsins. Þar væri samt einnig fjölbreytt starfsemi,“ segir Guðmunda Sigurðardóttir (Munda), sem ásamt börnum sínum þremur, innréttar kaffi- og afþreyingarhús í gamla Hljómvals-húsnæðinu í Reykjanesbæ. Mundu fannst menningin í miðbænum vera að grotna niður eftir hrun. „Ég hugsaði: Það þarf einhver að byrja! Það þarf eitthvað að gera! Líka fyrir næstu kynslóð.“
Margar hugmyndir verða að veruleika
Börn Mundu, þau Selma, Gylfi og Eyþór, þekkja móður sína vel og sýndu hugmyndinni smám saman mikinn áhuga og komu með eigin hugmyndir. „Þetta er eiginlega miklu eldri hugmynd. Þegar ég var í grunnskóla var mamma að láta mig koma heim með krakka sem höfðu lent í einelti. Þá átti helst að taka allan bekkinn heim til að stoppa það,“ segir Selma brosandi og bætir við að þau vilji vera með fyrirlestra um einelti, nokkurs konar jafningjafræðslu. „Væri gaman að fá skólana með okkur og fá þá bekkina til okkar á skólatíma til að fá fræðslu um einelti og sjálfsstyrkingu.“ Sjálf er Munda MS sjúklingur og langar að vera með fyrirlestur um veikindi og húmor. „Ég hef verið að stúdera sálfræði, hamingjuna og slíkt í mörg ár og fyrir löngu langaði mig að opna nokkurs konar mannbætandi hamingjukaffihús þar sem mannlegi þátturinn yrði í öndvegi. Ég starfaði á leikskólanum Vesturbergi og í um tuttugu ár vann ég með gamla fólkinu sem fótaaðgerðafræðingur. Það var erfitt að segja upp starfi mínu en ég var alltaf staðráðin í að hafa barnastarf á kaffihúsinu og einnig yrði gaman að hafa eitthvað fyrir eldri borgara, t.d. lestrarstund og einnig fyrir börnin á laugardögum. Foreldrar gætu þá fengið sér kaffisopa á meðan. Í stað þess að sakna vinnustaðanna minna get ég sameinað krafta mína og fengið fólkið hingað til mín,“ segir Munda glöð í bragði.
Vill auka verslun í heimabænum
Eins og fram hefur komið er markhópur kaffihússins stór og undirbúningurinn hefur verið hálfgert þróunarverkefni í að finna eitthvað við hæfi flestra. „Ég hugsaði til baka þegar ég var lítil og Stapafell var hérna, Litla Aðalstöðin, Lindin og Ótrúlega búðin. Um jólin var blússandi stemning og mér finnst leitt að börnin mín missi af slíku í heimabænum. Okkur langar að auka verslun hér heima. Þegar einn byrjar gætu fleiri tekið við,“ segir Munda. Þá séu einnig möguleikar í tengslum við ferðaþjónustuna, s.s. kynningarmyndbönd um Reykjanes fyrir ferðamenn.
„Gylfi stefnir á kvikmyndagerð og hefur þekkingu í það. Börnin mín munu taka sér ársleyfi frá námi og verða reynslunni ríkari eftir að hafa komið þessu á koppinn og starfað hér,“ segir Munda og bætir við að rétti tíminn til þess að láta þetta verða að veruleika sé einmitt núna. „Reynslan er komin og þegar þetta hús losnaði kom ekkert annað til greina. Ég keypti neðri hæðina sem er 198 fermetrar og gott rými fyrir ýmsa starfsemi. Við ætlum að byrja rólega og aðlaga okkur að bæjarbúum og leyfa þeim að koma með hugmyndir, enda hafa undirtektir verið góðar og margir kíkja við og eru forvitnir um framkvæmdirnar hér.“
Framtíðin veltur á bæjarbúum
Ætlunin er að vera með opið hús á laugardeginum á Ljósanótt. Þá verða allir veggir klárir og málverkasýning auk tónlistaratriðis, enda er fjölskyldan mjög tónelsk og ætlar að gefa ungu tónlistarfólki tækifæri á að stíga á stokk innandyra í framtíðinni. Jafnvel í samstarfi við tónlistarskólann. „Einnig verða teikningar hér uppi þar sem bæjarbúar og gestir geta séð hvernig þetta kemur til með að líta út. Við verðum með hugmyndakassa og hvetjum alla til að koma. Vonandi verða svo bæjarbúar duglegir að nýta staðinn. Framtíð hans veltur á því,“ segir Munda bjartsýn að lokum.
VF/Olga Björt