Réttað í Þórkötlustaðarétt á laugardaginn
	Réttað verður í Þórkötlustaðarétt í Grindavík laugardaginn 15. september kl. 14:00. Réttirnar eru oftast vel sóttar af gestum og stundum má vart á milli sjá hvor hópurinn er fjölmennari, menn eða sauðfé. 
	Gestir eru þó beðnir um að sýna tillitssemi við bændur og sauðfé og eru gestir í réttunum hvattir til að nýta sér göngustíga meðfram Austurvegi og Grindvíkingar beðnir um að skilja bílana eftir heima.
				
	
				
 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				