Reiðhjól fyrir almenning
Vodafone afhendir 30 reiðhjól í Grindavík og Reykjanesbæ. Reiðhjólin verða staðsett við sundlaugar staðanna og aðgengileg til notkunar á opnunartíma þeirra.
Reiðhjólin munu nýtast sem ókeypis farkostur fyrir bæjarbúa og ferðafólk í allt sumar.
Frumkvæðið að verkefninu kemur frá Vodafone, sem hefur unnið með sveitarfélögunum að framkvæmdinni undanfarna mánuði.
Tryggingamiðstöðin útvegar reiðhjólahjálma sem fást afhentir í afgreiðslu sundlauganna til notkunar með hjólunum.
Mynd: Svona líta hjólin út sem verða við sundmiðstöðvarnar í Reykjanesbæ og Grindavík.