Raulaði fjölskyldusönginn þegar hann beið eftir björgun
Stefán Einarsson, stangveiðimaður féll niður 8 til 9 metra af klettabrún niður í gil í Stóru Laxá í Hreppum en þar hefur hann veitt lax í tuttugu ár:
„Þetta gerðist mjög hratt þannig að ég gat ekki hugsað mikið á leiðinni niður en veit þó að ég reyndi að hlífa höfðinu. Man líka að ég hugsaði hvers lags vesen þetta væri á mér að lenda í þessu," sagði Stefán Einarsson, byggingaverktaki og stangveiðimaður úr Keflavík en hann varð fyrir því óhappi að detta 8-9 metra niður af klettabrún þegar hann var við veiðar í Stóru Laxá í Hreppum 12. sept. sl. Páll Ketilsson hitti Stefán og hlustaði á sögu hans, fyrst nokkrum dögum eftir óhappið á sjúkrahúsi í Reykjavík og síðan í byrjun desember.
Stefán var í árlegum veiðitúr með félögum sínum en þeir hafa farið í Stóru Laxá undanfarin tuttugu ár .Með honum voru sjö veiðifélagar en veitt er á fjórar stangir á svæði 4 en það þykir undur fagurt en að sama skapi magnað og ekki hættulaust. „Umhverfið þarna er stórbrotið og það þarf að umgangast það með virðingu. Ég var ótrúlega heppinn að slasast ekki meira. Í raun að lifa þetta af," segir Stefán þegar hann rifjar upp atburði þessa örlagaríka föstudagsmorguns. Veður var fallegt og stillt og Stefán og Róbert Fisher, veiðifélagi hans á stönginni hlökkuðu til að eiga við Hólmasvæðið sem er þriðja efsta veiðisvæðið á þessu fjórða svæði Stóru Laxár sem er frægt fyrir marga stóra laxa í gegnum tíðina. Stefán veiddi tvo tuttugu punda laxa og einn fimmtán punda í ánni, fyrir rúmum áratug síðan og hann hampaði einum þeirra á flottri ljósmynd með viðtali í Víkurfréttum. Fleiri skemmtilegar veiðisögur eru til af Suðurnesjamönnum úr ánni eins og t.d. þegar Gísli Guðfinnsson veiddi 26 punda ferlíki um árið.
Síðasti túrinn
Fyrstu tvo dagana hafði verið lítil veiði og veiðifélagarnir sem flestir eru orðnir "rosknir karlmenn" á miðjum aldri og jafnvel þar fyrir ofan, sammæltust um það á kvöldvöku hópsins, kvöldið áður en atburðurinn átti sér stað, að þetta yrði síðasta ár hópsins á þessum stað í ánni. „Við erum flestir komnir af léttasta skeiði og sumir, eins og ég, „ekki í léttvigt, heldur í þyngri kantinum. ", segir Stefán og hlær en bætir svo íbygginn við: „Einhverjir höfðu runnið lítillega til hér og þar og við vorum sammála um að nú væri kominn tími til að kveðja okkar skemmtilegu og fallegu á sem við höfum veitt svo lengi í".
„Þú hefur nú allur frískast í andlitinu. Það var ekki sjón að sjá þig þegar þeir komu með þig hingað á spítalann," sagði Eydís Eyjólfsdóttir, eiginkona Stefáns en ritstjóri VF hitti þau á Sjúkrahúsi Reykjavíkur í Fossvogi nokkrum dögum eftir óhappið.
Stefán slasaðist mikið í fallinu. Hægri fóturinn brotnaði og svo brotnaði Stefán einnig við olnboga á vinstri hönd. Þá fór hann úr axlarlið, skarst mikið á hægri hönd, auk þess að brotna þar líka og var bólginn og lemstraður víðar á líkamanum. Stefán segir að það hafi verið sérkennileg upplifun að vera vakandi í aðgerðinni sem hann fór í vegna fótbrotsins kvöldið sem hann kom á sjúkrahúsið en hann fékk mænudeyfingu þannig að hann gat fylgst með að einhverju leyti. „Læknar og hjúkrunarfólk stóð sig frábærlega í öllu þessu ferli, allt frá því ég kom inn á sjúkrahúsið, í aðgerðinni og eftir hana. Mér fannst reyndar skrítið að sjá hægri löppina beint upp í loftið í aðgerðinni," segir hann og hlær.
Eftir sjúkrahúsvistina í Reykjavík í eina viku var Stefán fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og þar var hann í tvær vikur. Stefán segir að þar hafi hann fengið frábærar mótttökur og umönnun og bætir því við hversu mikilvægt það sé að hlúa að þessari stofnun okkar Suðurnesjamanna í ljósi umræðunnar um daginn um niðurskurð.
Hvað hefur komið fyrir þig Stebbi?
En að föstudagsmorgninum örlagaríka 12.september 2008. Stefán og Róbert héldu á veiðistaðinn árla morguns í blíðskaparveðri og Stefán segir að hann hafi sagt félaga sínum að hefja veiðar en hann hafi átt eftir að græja sig til og hafi síðan gengið sömu leið og Róbert.
Á Hólmasvæðinu þarf að fara yfir göngubrú úr timbri til að komast yfir ánna og veiða. Stefán segir að félagar hans hafi komið með tvo fína laxa við lok veiði kvöldið áður af Hólmasvæðinu og því hafi þeir verið spenntir að veiða þar eftir nokkuð fiskleysi. Róbert hóf veiðar á veiðistaðnum Klauf um 200 metra frá brúnni. Stefán var að skima eftir fiski, hann lagði frá sér veiðistöngina og töskuna og gekk upp á bergstapa sem er mosavaxinn að ofan og fram yfir klettabrúnina. Það er algengt að veiðimenn kíki eftir laxi á þessum stað.
Allt í einu skrikar honum fótur og hann fellur fram af brúninni niður eina fimm metra, lendir þar á annarri klettasyllu og af henni áfram niður í klettavaxið gljúfrið, nokkra metra til viðbótar. „Skrifaði" ferð sína niður hlíðina með mosanum.
„Þetta gerðist mjög hratt og ég bar fyrir mér höndunum. Ég kútveltist niður og man ekki mikið á leiðinni hvernig þetta gerðist. Man þó að ég hugsaði fyrst og fremst um að reyna að hlífa höfðinu. Þegar ég lá á bakinu eftir fallið niður reyndi ég fyrst að færa hægri fótinn en það gerðist ekki neitt. Það eina sem mér datt þá í hug þegar ég gerði mér grein fyrir að þetta var nokkuð alvarlegt, var að öskra eins og ljón og vona að Róbert heyrði í mér. Hann gerði það og var vægast sagt dauðskelkaður þegar hann sá mig. „Hvað kom fyrir þig Stebbi minn?" sagði hann við mig. „Ég hrundi niður eins og bjáni. Mér finnst eins og ég hafi lent undir vörubíl, sagði ég og bað hann í dauðans ofboði að ná í hjálp. Það væri ljóst að það þyrfti meira til en einfalda fyrstu hjálp."
Lykilatriði Stefáns
Róbert beið ekki boðanna heldur fór á jeppabifreið Stefáns en hann hafði í upphafi veiðitúrsins sagt Róberti frá prinsipp-atriði þegar hann færi að veiða, en það væri að geyma alltaf bíllykilinn ofan á framdekkinu. Það væri gott öryggisatriði ef eitthvað kæmi fyrir.
Róbert náði í bóndann á næsta bæ, Björgvin Þór Harðarson, sem svo vel vildi til að er formaður björgunarsveitarinnar Sigurgeirs í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og einnig í Konráð Lúðvíksson, lækni og veiðifélaga Stefáns til tuttugu ára. Konráð var við veiðar á öðrum stað með Sævari Reynissyni, einum sjömenninganna. Bóndinn og kona hans, Petrína Þórunn Jónsdóttir, Konráð, Sævar og fleiri aðilar voru komnir til Stefáns eftir um fjörtíu mínútur og hófu björgunaraðgerðir. Þær voru ekki einfaldar. Konráð byrjaði þó á því að líta á félaga sinn, klippti af honum vöðlurnar og föt, til að athuga með líðan hans og hvort það væru nokkur innvortis meiðsl. Konráð sagði að hann væri brotinn en ekki í lífshættu og segir Stefán að hann hafi nú spurt félaga sinn hvort hann hafi nauðsynlega þurft að klippa vöðlurnar í ræmur.
Hringt hafði verið í neyðarlínuna og þyrla kom skömmu síðar. Þangað til þurfti að koma Stefáni yfir brúnna á þar til gerðum börum og þar þurfti að beita mikilli lagni við mjög erfiðar aðstæður. Var Stefán dreginn á börunum með spotta yfir brúnna því ekki var þorandi að margir færu yfir hana í einu og skreið kona bóndans á eftir og stýrði börunum yfir hengibrúnna. Síðan var hann borinn frá brúnni að þyrlunni og Stefán segir að verulega hafi reynt á burðarmenn enda sjúklingurinn full vaxinn eins og sagt er og á brattann að sækja. Björgunarsveitarmenn komu svo til aðstoðar og báru Stefán síðasta spölinn inn í þyrlu sem flaug með hann á sjúkrahús til Reykjavíkur á innan við 20 mínútum.
Hatturinn góði
Þegar Róbert veiðifélagi Stefáns kom að honum, rétti hann honum húfuna sína sem hann hafði bleytti í ánni, til að kæla félaga sinn eftir fallið og eins til að halda honum vakandi. Veiðihattur Stefáns hafði hins vegar fokið út í veður og vind við fallið, en veiðigleraugun voru enn á honum, alblóðug, en ekki var svo mikið sem sandkorn í augum, þannig að þau veittu góða vörn. Veiðihattinn hafði Stefán fengið að gjöf frá föður sínum heitnum, Einari Þór Arasyni og hélt mikið upp á hann enda veitt með hann á hausnum í mörg ár. Þegar kona frá lögreglunni á Selfossi hringdi í Stefán til að fá skýrslu um atburðinn spurði hún hvort hann hafi tapað einhverju. Stefán jánkaði því og sagðist sakna veiðihattarins góða. Konan sagðist hafa góða frétt að færa, því hatturinn hefði fundist og biði hans á hillu á lögreglustöðinni á Selfossi. „Ég sagði við konuna að ég myndi koma við fyrsta tækifæri og færa henni kleinur með kaffinu. Þetta voru góðar fréttir", segir Stefán og brosir.
Fjölskyldusöngurinn sunginn
Þegar liðið er á spjall okkar á sjúkrahúsinu segist Stefán vilja segja blaðamanni og Eydísi konu sinni lítið leyndarmál frá atburðinum. Eiginkonan og blaðamaður VF sperrtu eyrun. Stefán segir svo frá: „Ég gerði mér grein fyrir því, þegar Róbert fór til að ná í hjálp að ég myndi þurfa að liggja í nokkra stund við ánna án þess að geta hreyft hvorki legg né lið. Ég leit í kringum mig og horfði á þessa miklu fegurð milli kletta og ekki minnkuðu áhrif hennar í blíðviðrinu og við árniðinn. Og hvað haldiði að ég hafi gert? Ég fór að syngja lagið sem ég hef sungið oft með og fyrir börnin mín og við fjölskyldan syngjum á ferðalögum. - „Inn milli fjallanna, hér á ég heima"... Stefán raulaði þetta og sagði það hafa óneitanlega átt vel við á þessum stað og haft róandi áhrif á sig.
Blaðamanni var litið á Eydísi og sá tár á hvarmi. Hún hafði ákveðið að sitja með okkur í spjallinu því hún hafði ekki enn (á fjórða degi frá óhappinu) fengið nákvæma lýsingu á atburðum, því Stefán hafði verið sárþjáður og í alls kyns rannsóknum fyrstu dagana. Hún sagði svo: „Við skulum ekki hafa þetta neitt leyndarmál Stebbi minn. Það má alveg segja frá þessu".
Nú eru liðnir þrír mánuðir frá atvikinu sem á aldrei eftir að fara úr huga Stefáns og fjölskyldu hans. Jólin að koma en hvernig líður karlinum núna?
Hann segir að endurhæfing sé hafin af fullum krafti. Í síðustu viku kom í ljós að taugar eru skaddaðar í hægri hendi og þarf Stefán að fara í þó nokkuð mikla aðgerð hjá handarsérfræðingi. Hann gengur ennþá með hækjur og er með spelkur á hægri fæti en vonast til að losna við hjálpartækin fljótlega á nýju ári.
Það var ekki hægt annað en að spyrja Stefán hvernig það sé að vera í veikindaleyfi þegar kreppan skall á.
„Fyrstu viðbrögð við kreppunni voru áhyggjur af öllu umhverfinu, rekstri fyrirtækisins og hvað væri framundan. Svo er þetta búið að vera hálfgerður rússíbani í þjóðfélaginu fram á þennan dag. Ég hef þó mikla trú á minni þjóð. Við eigum eftir að rífa okkur upp úr þessari lægð. Við höfum örugglega séð það svartara áður.Með samstilltu átaki og góðum stjórnmálamönnum vinnum við okkur út úr þessu."
Hlýhugur og stuðningur
En hvernig reynsla er þetta fyrir frískan mann að lenda í svona atviki og vera kippt úr úr hringiðunni, en Stefán rekur með Ara bróður sínum samnefnt trésmíðaverkstæði. „Maður forgangsraðar öðruvísi eftir svona atburð og metur hlutina á annan veg. Það er ekki alltaf sléttur sjór. Maður verður að muna að njóta augnabliksins og líðandi stundar. Það er ómetanlegt að eiga góða að, konu og börn. Það hefur mikið hvílt á þeirra herðum. Ég vil fá að nota tækifærið og þakka þeim fjölmörgu sem komu að björguninni og ómældar góðar kveðjur og heimsóknir frá vinum og ættingjum. Eins skilninginn sem konan mín hefur fengið á sínum góða vinnustað, en hún vinnur í Sparisjóðnum í Keflavík og hefur fengið það svigrúm sem á hefur þurft að halda, við að koma mér á milli lækna. Það er ómetanlegt að finna hlýhug samborgaranna og finna stuðninginn á erfiðum tímum," sagði Stefán og vildi koma bestu óskum um Gleðileg jól til Suðurnesjamanna.