Bygg
Bygg

Mannlíf

  • Rauðhetta orðin stærri og skemmtilegri
  • Rauðhetta orðin stærri og skemmtilegri
Laugardagur 7. nóvember 2015 kl. 07:00

Rauðhetta orðin stærri og skemmtilegri

– Leikfélag Keflavíkur frumsýnir Rauðhettu á laugardag

Leikfélag Keflavíkur frumsýnir nú á laugardaginn fjölskylduleikritið Rauðhettu, í leikstjórn Víkings Kristjánssonar leikara. Verkið er barnaleikrit fyrir alla fjölskylduna, en Víkingur segir að verkið hafi verið stækkað og inní það bætt fjölmörgum nýjum persónum til að krydda söguna og gera hana skemmtilegri. Auk þess hafa verið samin nokkur skemmtileg lög sem setja skemmtilegan svip.

Þetta er í annað skipti sem Leikfélag Keflavíkur setur upp leikritið um hana Rauðhettu. Árið 1981 var Rauðhetta sett á svið í Félagsbíói í leikstjórn Þóris Steingrímssonar. Þórir tók við hlutverki úlfsins strax á annarri sýningu eftir að leikarinn sem upphaflega átti að leika hann forfallaðist. Með hlutverk Rauðhettu fór Bjarney Sigvaldadóttir en aðrir leikarar voru m.a. Hjördís Árnadóttir sem lék hérann, Árni Ólafsson lék refinn, Júlíus Baldursson lék björninn, Lína Kjartansdóttir lék snákinn, Ingibjörg Guðnadóttir lék mömmuna, Ingibjörg Hafliðadóttir lék ömmuna og Gísli B. Gunnarsson sem leikur veiðimanninn í þessari sýningu núna, 34 árum seinna kom einnig að þeirri uppsetningu. Í þessari sýningu steig líka ung stúlka sín fyrstu skref á sviði hjá Leikfélagi Keflavíkur Guðný Kristjánsdóttir sem lék hérakríli og hefur ekki getað slitið sig frá leikhúsinu síðan.

Verkið fjallar um Rauðhettu og hennar baráttu við úlfinn, refinn og fleiri óvini í skóginum en á leiðinni til ömmu sinnar hittir hún hinar ýmsu furðuverur sem flestir ættu að kannast við. Hvert mannsbarn hefur eflaust lesið söguna eða heyrt af henni í gegnum tíðina enda sagan vel þekkt ævintýri.

Æfingar á verkinu hófust um miðjan september og verður frumsýningin laugardaginn 7. nóvember kl.18.00 í Frumleikhúsinu. Tilvalið er fyrir grunnskólabekki, leikskólahópa og aðra hópa að koma saman og nýta sér sérstakan afslátt sem veittur er fyrir hópa.

2. sýning verður sunnudaginn 8.nóv. kl.17.00. Miðapantanir eru í síma 421-2540. Miðaverð aðeins 2500 kr. Nánari upplýsingar eru inni á www.lk.is



 

Bílakjarninn
Bílakjarninn