Rauðhærðasti Íslendingurinn úr Reykjanesbæ
	Rauðhærðasti Íslendingurinn árið 2016 er ung stúlka úr Reykjanesbæ. Hún var valinn á Írskum dögum á Akranesi og heitir Helga Guðrún Jónsdóttir. Alls tóku 34 þátt í keppninni en keppnin um rauðhærðasta Íslendinginn hefur verið haldin á Írskum dögum frá upphafi eða í 17 ár.
	
	Helga Guðrún verður ellefu ára síðar í mánuðinum og býr í Keflavík. Hún kom ásamt fjölskyldu sinni á Akranes til að taka þátt í keppninni en Helga hefur fylgst með keppninni í mörg ár. Helga fær að launum ferð til Írlands fyrir tvo með Gaman Ferðum.
	
Helga með Guðlaugu ömmu sinni.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				