Rauða Kross búðin kom unga fólkinu á óvart
„Klárt mál að ég mun fara oftar að skoða og kaupa mér föt“
Rauði Krossinn á Suðurnesjum rekur fataverslun við Smiðjuvelli í Reykjanesbæ þar sem boðið er upp á fatnað sem fólk á svæðinu hefur gefið. Þar er mikið úrval af alls kyns fatnaði í öllum stærðum og gerðum. Við fengum með okkur tvo unga Suðurnesjamenn, þau Özru Crnac og Arnór Breka til þess að fara í Rauðakross-búðina og kaupa tvö „outfit“, eitt hversdags og annað aðeins fínna fyrir jólin. Þau fengu 10.000 krónur í heildina til þess og tókst vel til.
Mun hiklaust fara aftur með vinkonurnar í eftirdragi
„Þetta verkefni sem við fengum var afar krefjandi. Ég vissi í rauninni ekki hvað ég var að koma mér út í en það hljómaði spennandi. Um leið og ég gekk inn í Rauða Krossinn blasti við mér fullt af fallegum flíkum og það tók mig ekki langan tíma að finna mér föt sem ég varð strax ástfangin af,“ sagði Azra Crnac.
„Ég valdi mér tvær yfirhafnir, tvennar buxur, peysu og bol. Yfirhafnirnar hafði ég hugsað sem smá „blast from the past“ sem ætti við okkar nútíma tísku. Ég hef lengi leitað mér að dúnúlpu við hæfi, sem mér þykir temmilega „oversized“ en ekki of síð. Viti menn, það leyndist ein slík í fatarekkanum í búðinni. Það var fyrsta flíkin sem ég fann. Svo fann ég fallegan „vintage“ pels sem mig hefur lengi dreymt um en það er ótrúlegt hvað það leynast margar gersemar þarna inni. Pelsinn er hægt að nota við marga viðburði, hvort sem það er rölt á Laugaveginum á köldum vetrardegi eða á leiðinni í jólaboð. Buxurnar voru ekki af verri gerðinni, mjög einfaldar gallabuxur sem ég fann með aðstoð starfsfólks. Starfsfólkið átti mikinn þátt í fatavalinu en ég þurfti ekki annað en að lýsa fyrir þeim flíkinni sem ég hafði séð fyrir mér og á augabragði voru þær mættar með hana skælbrosandi. Svoleiðis fann ég einmitt fínu, útvíðu buxurnar sem ég klæðist við pelsinn. Ég vildi fá slíkar buxur við fallegan bol sem myndi falla vel saman. Bolurinn sem ég valdi er ekkert ósvipaður „gatsby“ fílingnum og fannst mér hann mjög viðeigandi. Þessi ferð mín í Rauða krossinn skildi eftir hlýja minningu í hjartanu. Ég sá svo mikið og mér finnst magnað að geta endurnýtt gamlar flíkur sem eru að koma aftur í tísku á hagkvæman og umhverfisvænan hátt. Það skemmir ekki reynsluna að starfsfólkið er gríðarlega hvetjandi og huggulegt. Reynslan mín var svo jákvæð að ég mun hiklaust nýta mér það að fara þangað aftur og helst með vinkonur mínar í eftirdragi.“
„Jóla dressið“ sem Azra valdi sér. Verð: 4200 kr.
Venjulega „outfit-ið“ hennar Özru. Verð: 4400 kr.
Klárt mál að ég mun fara oftar að skoða og kaupa mér föt
„Þetta verkefni sem við fengum að taka þátt í var mjög spennandi og skemmtilegt. Ég var ekki alveg viss um hvað ég væri að koma mér út í og ég hafði ekki hugmynd um það hvort ég myndi finna mér eitthvað af flottum fötum. Ég hafði litlar væntingar en mér brá verulega þegar ég kom á staðinn og sá mikið af flottum fatnaði sem ég bjóst ekki við að væri til. Ég valdi mér flottan vaxjakka, svartan bol, svartar gallabuxur og brúna fína kuldaskó í venjulega „outfittið“ mitt. Það tók mig ekki langan tíma að finna fötin en ég var gríðarlega ánægður með útkomuna og þetta er klárlega fatnaður sem ég myndi ganga í hversdagslega.
Að velja jóladressið var aðeins meira krefjandi en gaman. Það var mikið af flottum jakkafötum í ýmsum stærðum. Eftir dágóða leit fann ég geggjuð kjólföt sem ég gat bara ekki látið vera. Þau pössuðu vel á mig og urðu fyrir valinu. Jóladressið var því samsett af kjólfötum að ofan, svartri skyrtu, vínrauðri slaufu og fann svo þessa fínu „Chelsea boots.“ Ég er virkilega ánægður með það sem ég valdi mér. Þetta var mjög skemmtileg reynsla. Starfsfólkið er alveg yndislegt og virkilega hjálpsamt og vil ég þakka þeim sérstaklega. Það er alveg klárt mál að ég mun fara oftar í Rauða Krossinn að skoða mér og kaupa föt. Þar leynist greinilega mikið af flottum fötum á mjög ódýru verði,“ sagði Arnór Breki Atlason um ferðina í Rauða Krossinn.
„Jóla dressið“ sem Arnór Breki valdi sér. Verð: 5600 kr.
Venjulega „outfit“ Arnórs. Verð: 4000 kr.