RANGFÆRSLUR OG ÁSAKANIR HJÁ LÖGFRÆÐINGI VIGNIS
ATHUGASEMD FRÁ VÍS VEGNA UMMÆLA LÖGFRÆÐINGS VIGNIS SKÚLASONAR SEM LENTI Í UMFERÐASLYSI Í HVALFIRÐIÍ 44. tbl. Víkurfrétta er birt viðtal við Vigni Skúlason og lögfræðing hans, í tilefni af umferðarslysi, sem Vignir lenti í 3. júní 1994. Það er venja hjá Vátryggingafélagi Íslands að fjalla ekki um mál einstakra tjónþola í fjölmiðlum, en þar sem ýmsar rangfærslur og ásakanir koma fram í þessu viðtali sér Vátryggingafélag Íslands sig knúið til að víkja frá þessari venju.Vignir varð fyrir mjög alvarlegum meiðslum í umræddu slysi. Sá sem valdur var að slysinu var með ábyrgðartryggingu hjá VÍS, og er því skylda félagsins að greiða bætur fyrir tjón hans og um það hefur aldrei verið ágreiningur að Vignir ætti rétt á fullum bótum fyrir slysið. Félagið hefur frá slysdegi verið reiðubúið til þess að greiða Vigni bætur fyrir tjón hans og fór fyrsta greiðsla fram 19. júlí 1994, 6 vikum eftir slysið. VÍS hefur frá þeim tíma fram til ársloka 1998 greitt beint til Vignis eða til lögmanns hans samtals kr. 4.010.000.-. Auk þess hefur félagið endurgreitt honum allan útlagðan kostnað vegna læknismeðferðar o.fl. og vélhjólið var greitt þann 15. júlí 1994.Lögmaður Vignis stóð að því að fá einn lækni til þess að meta afleiðingar slyssins, og skilaði hann örorkumati 28. nóvember 1996. Mat þessi læknir tímabundna óvinnufærni og veikindatímabil, og hefur ekki annað mat farið fram á þeim þáttum. Varanlegan miska mat hann 45% og varanlega örorku einnig 45%.Lögmaður Vignis gerði kröfu til þess að tjónið yrði gert upp á grundvelli þessa mats, en félagið taldi ekki rétt að byggja uppgjör tjónsins á niðurstöðu eins læknis og hafði því frumkvæði að því að leita álits Örorkunefndar á málinu, en í henni sitja 2 læknar og einn lögmaður.Örorkunefnd skilaði álitsgerð 1. desember 1998, sem fól í sér að varanlegur miski var metinn 40% og varanleg örorka 60%.Þegar þessi niðurstaða Örorkunefndar lá fyrir, lýsti félagið sig reiðubúið að ganga til uppgjörs á grundvelli hennar, en mat Örorkunefndar var mun hagkvæmara fyrir Vigni heldur en fyrra matið. Gerði félagið lögmanni fyrir hönd Vignis tilboð um, að heildartjónið yrði bætt með kr. 10.345.829.- auk vaxta og kostnaðar.Lögmaðurinn hafnaði samningum um uppgjör á þessum grundvelli og stefni málinu fyrir héraðsdóm í júní 1999.Almennt ríkir ekki ágreiningur um, hvernig greiða skuli bætur vegna umferðarslysa og fer uppgjör tjóna af þessum toga almennt fram utan réttar. Ef ágreiningur er um málin, er réttur vettvangur að leita til dómstóla, en mjög fá dómsmál eru þó höfðuð vegna þessara slysa.Tilefni þessara athugasemda félagsins er ekki það, að málinu hafi verið stefnt fyrir dómstóla, heldur aðeins þær rangfærslur, sem birtast í grein Víkurfrétta frá 29. október.Hér hefur verið rakið, hverjar greiðslur hafa þegar verið inntar af hendi, og kemur félaginu á óvart ef Vignir sjálfur hefur ekki vitneskju um þær, þótt hluti þeirra hafi að vísu verið greiddur til lögmanns hans.Lögmaðurinn leyfir sér að segja, að félagið hafi viljað ljúka málinu með greiðslu bóta að upphæð kr. 3.000.000.-Fyrir liggur að honum var gert tilboð um að heildartjónið yrði bætt með kr. 10.345.829.- auk vaxta og kostnaðar.Lögmaðurinn veit einnig að félagið hefur þegar greitt upp í tjónið kr. 4.010.000.- enda hefur hann sjálfur veitt viðtöku drjúgum hluta þeirrar fjárhæðar. Vátryggingafélag Íslands h.f. beinir því almennt til þeirra aðila er verða fyrir líkamstjóni vegna umferðarslysa, að leita til lögmanns, með sérfræðiþekkingu á sviði skaðabótaréttar, þegar til uppgjörs á tjóninu kemur, enda er mikils virði fyrir þann slasaða að hafa sér til aðstoðar aðila sem er sérfróður á þessu sviði.