Mánudagur 7. júní 2004 kl. 21:54
Randaflugan það mest spennandi í fyrri hálfleik

Fyrri hálfleikur í leik Keflavíkur og Víkings í Landsbankadeildinni í kvöld hafði orð á sér að hafa verið lítið fyrir augað. Það kom okkur því ekki á óvart að það sem ljósmyndaranum þótti mest spennandi í fyrri hálfleik var þessi pattaralega randafluga á hliðarlínunni. Það gerðist meira í síðari hálfleik og þá var flugan jafnframt flogin á vit nýrra ævintýra.
VF-ljósmynd: Héðinn Eiríksson