Púlsinn ævintýrahús: Dansnámskeið að hefjast!

Hiphop dansnámskeið eru mjög vinsæl á meðal unga fólksins en þar eru dansarnir úr tónlistarmyndböndum á MTV kenndir með flottri hiphop tónlist.
Magadans höfðar til kvenna á öllum aldri en dansinn fléttar saman seiðandi tónlist og kvenlegum hreyfingum. Hann er stundum kallaður frjósemisdansinn! Allar konur eru fallegar gyðjur í magadansi. Æft er í almennum íþróttafötum ef konur vilja.
Orkudans er svo villti dansinn í dansflóru Púlsins, þar fáum við konur á öllum aldri. Nú viljum við einnig hvetja karlmenn að koma í þessa tíma, því þeir þurfa líka útrás.Alls konar tónlist er í tímanum, bæði trommur, klassík og popplög. Í þessum tíma blandast saman afródans, salsa, magadans og svo auðvitað þinn eigin dans, því einstaklingurinn fær einnig að njóta sín til fulls í Orkudansi.
Nú er bara að finna hvaða danstími hentar þér og drífa svo í því að skrá sig á meðan enn er pláss.