HSS
HSS

Mannlíf

Prumpuhóllinn vakti kátínu í Grindavík
Þriðjudagur 26. október 2010 kl. 08:49

Prumpuhóllinn vakti kátínu í Grindavík

Möguleikhúsið heimsótti heilsuleikskólann Krók í Grindavík í síðstu viku og sýndi leikritið Prumpuhólinn í boði foreldrafélagsins. Leikritið vakti mikla lukku og var mikið hlegið og börnin mjög spennt.

Leikritið var um Huldu sem er nýflutt úr borginni og upp í sveit. Þegar hún fer í feluleik með Halla bróður sínum villist hún og ratar ekki heim. Við sérkennilegan hól sem gefur frá sér dularfull hljóð hittir hún Steina. Hann er kátur tröllastrákur í skrítnum fötum sem segir Huldu að hóllinn sé pabbi hans. Pabbi hans hafði lent í sólargeisla og orðið að steini eftir að hafa borðað rosalega mikinn hundasúrugraut og grauturinn ólgar enn svo drynur í hólnum. Og fýlan... maður lifandi!

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Fleiri myndir á heimasíðu leikskólans.


Það er heimasíða Grindavíkurbæjar, www.grindavik.is, sem greinir frá þessu.