Prins Póló & Moses Hightower í Hljómahöll
Prinsinn og Moses ætla að fagna sjálfum sér og hvor öðrum, sem og glóðvolgri músík sem þeir eru að þrykkja út í kosmósið. Tónleikarnir fara fram fimmtudaginn 12. maí í Stapa í Hljómahöll. Húsið opnar kl. 19:00 og tónleikar hefjast kl. 20:00.
Miðasala hefst kl 11:00 föstudaginn 25. mars á hljomaholl.is.
Rútuferðir verða í boði í miðakaupferlinu fyrir tónleikagesti á höfuðborgarsvæðinu.