Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Pottþétt hressandi að vera með Maradona í góðu partýi
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
laugardaginn 30. maí 2020 kl. 09:17

Pottþétt hressandi að vera með Maradona í góðu partýi

Einar Hannesson er grjótharður Keflvíkingur sem vissi ekki hvað hann vildi verða þegar hann yrði stór

– Nafn:

Einar Hannesson.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

– Fæðingardagur:

30. janúar 1974.

– Fæðingarstaður:

Rigshospitalet í Kaupmannahöfn (en er samt hundlélegur í dönsku).

– Fjölskylda:

Giftur Maddý Andrésdóttur og við eigum þrjú börn saman, þau Andreu, Bjarka Frey og Hlyn Þór.

– Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór?

Vissi ekki hvað mig langaði til að verða þegar ég yrði stór fyrr en ég varð stór. Finnst fyrst og fremst gaman að vinna með fullt af alls konar fólki.

– Aðaláhugamál:

Ætli körfubolti standi ekki þar upp úr og að stússast í kringum íþróttir barnanna í gegnum tíðina. Svo er hrikalega gaman á skíðum.

– Uppáhaldsvefsíða:

kki.is

– Uppáhalds-app í símanum:

Leggja er geggjað!

– Uppáhaldshlaðvarp:

Kann ekki á svoleiðis.

– Uppáhaldsmatur:

Nauta ribey í 57° með Bearnaise-sósu.

– Versti matur:

Brauðsúpa og slímugar ostrur.

– Hvað er best á grillið?

Íslenska fjallalambið klikkar ekki.

– Uppáhaldsdrykkur?

Ísköld nýmjólk.

– Hvað óttastu:

Að þurfa einhvern tímann að taka stærðfræðipróf aftur.

– Mottó í lífinu:

Sinna vinum mínum af kostgæfni og gefa af mér í leik og starfi.

– Hvaða mann eða konu úr mannkynssögunni myndir þú vilja hitta?

Maradona af því hann er óútreiknanlegt ólíkindatól og hörkudansari. Pottþétt hressandi að vera með honum í góðu partýi.

– Hvaða bók lastu síðast?

Ítalskir skór eftir Henning Mankell en er annars mikill aðdáandi Halldórs Laxness.

– Ertu að fylgjast með einhverjum þáttum í sjónvarpinu?

Maður er auðvitað búinn að þurrka upp Netflix eins og hálft mannkynið. Þar má nú helst nefna þætti eins og Kalifat, The Last Dance og Ozark.

– Uppáhaldssjónvarpsefni?

Góðar njósnamyndir geta verið klassa afþreying.

– Fylgistu með fréttum?

Já, líklega óþarflega mikið.

– Hvað sástu síðast í bíó?

Úff, man það bara ekki svona á tímum kórónuveirunnar.

– Uppáhaldsíþróttamaður?

Erfitt að nefna ekki Michael Jordan. Fíla menn með tryllt keppnisskap.

– Uppáhaldsíþróttafélag?

Er grjótharður Keflvíkingur (en synir mínir segja að ég haldi með Breiðablik).

– Ertu hjátrúarfullur?

Nei, mjög langt frá því.

– Hvaða tónlist kemur þér í gott skap?

Hjálmar tikka í öll boxin.

– Hvað tónlist fær þig til að skipta um útvarpsstöð?

Leyfi nú flestri tónlist að slæda en nenni ekki að hlusta á of mikið pólitískt þras í útvarpinu.

– Hvað hefur þú að atvinnu?

Er framkvæmdastjóri hjá innflutnings- og þjónustufyrirtækinu Fastus ehf.

– Hefur þú þurft að gera breytingar á starfi þínu vegna COVID-19?

Já, hef unnið töluvert að heiman undanfarna mánuði. Fínt í hófi en ég er mikil félagsvera og þrífst því töluvert betur innan um margt fólk.

– Hvernig hefur þú verið að upplifa árið 2020 hingað til?

Skrítið, stórfurðulegt – en hef líklega aldrei verið jafn mikið með börnunum mínum sem er stórkostlegt.

– Er bjartsýni fyrir sumrinu?

Já, já, er það ekki bara.

– Hvað á að gera í sumar?

Verður maður ekki að ferðast um landið fagra. Kannski veiða eitthvað og jafnvel horfa eitthvað á þann yngsta spila fótbolta.

– Hvert ferðu í sumarfrí?

Alla vega ekki til útlanda þetta sumarið en annars finnst mér alltaf næs að liggja á sólarströnd einhvers staðar við Miðjarðarhafið og þá helst með Piña Colada í hönd.

– Ef þú fengir gesti utan af landi sem hafa aldrei skoðað sig um á Suðurnesjum. Hvert myndir þú fara með þá fyrst og hvað myndir þú helst vilja sýna þeim?

Náttúran á Suðurnesjum er falin perla. Ótrúleg náttúrufyrirbrigði á litlu svæði sem alltof fáir þekkja. Geri töluvert af því að fara með utanaðkomandi fólk á áhugaverða staði svo sem Keili, Þorbjörn, Garðskaga, Reykjanes og svo mætti lengi telja.

Viðtalið birtist í 22. tbl. Víkurfrétta 2020 – Smelltu hér til að lesa rafrænar Víkurfréttir