Bygg
Bygg

Mannlíf

Portishead og Interpol stærstu nöfnin á ATP
Mánudagur 6. janúar 2014 kl. 09:41

Portishead og Interpol stærstu nöfnin á ATP

Hljómsveitirnar PORTISHEAD og INTERPOL verða stærstu hljómsveitirnar á ATP-hátíðinni á Ásbrú í júlí en hvorug hljómsveitin hefur komið fram áður á Íslandi.

„Hljómsveitin Portishead á farsælan feril að baki og við höfum átt mjög náið samband við sveitina í gegnum tíðina. Portishead var listrænn stjórnandi á ATP árið 2007 en þá hafði sveitin verið í löngu fríi og ekki spilað á tónleikum í mörg ár. Þá var hljómsveitin listrænn stjórnandi á fyrstu I'll Be Your Mirror-tónleikaröðinni okkar. Hljómsveitin Interpol, sem er í miklu uppáhaldi hjá okkur hjá ATP, hafa hins vegar aldrei komið fram á viðburðunum okkar og það er því mjög spennandi að tilkynna að þeir spila í fyrsta skiptið á ATP þegar ATP Iceland verður haldið í annað sinn í júlí á Ásbrú.“ segir Barry Hogan, stofnandi ATP.

Portishead verður stærsta nafnið föstudaginn 11. júlí og Interpol stærsta nafnið laugardaginn 12. júlí.

Hljómsveitirnar Mammút, For a minor Reflection, Samaris, Sóley og Low Roar verða einnig á meðal þeirra hljómsveita og tónlistarmanna sem koma fram á hátíðinni. Á næstu vikum verður tilkynntur fjöldinn allur af erlendum og íslenskum hljómsveitum til viðbótar.

ATP Iceland hertekur Ísland í sumar með fjölda viðburða frá 7. júlí þar til hátíðin hefst 10. júlí. Dagana á undan hátíðinni verða haldnir tónleikar, ATP Recordings-kvöld, listsýningar, kvikmyndasýningar og fleira.

Bílakjarninn
Bílakjarninn