Mannlíf

Pólski sendiherrann og frú í heimsókn í Reykjanesbæ
Miðvikudagur 26. september 2018 kl. 11:01

Pólski sendiherrann og frú í heimsókn í Reykjanesbæ

Sendi­herra Pól­lands á Íslandi, Ger­ard Pokruszynski og eiginkona hans Marg­her­ita Bacigal­upo-Pokruszynska eru nú í óopinberri heimsókn í Reykjanesbæ. Þau hafa heimsótt menningarstofnanir og fengið kynningu á starfsemi þeirra. Þá hafa þau kynnt sér menningarlífið og samfélagið, m.a. móðurmálskennslu pólskra barna sem búsett eru í bænum.

Um 4000 íbúar í Reykjanesbæ eru af pólsku bergi brotnir. Bókasafn Reykjanesbæjar er búið góðu úrvali pólskra bóka fyrir börn og fullorðna. Reykjanesbær heldur úti Facebook síðu sem miðar að því að koma upplýsingum til pólskra íbúa og mynda tengsl. Þá hefur Reykjanesbær ráðið til sín verkefnisstjóra fjölmenningarmála, Hilmu Hólmfríði Sigurðardóttur.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024