Pólland í máli, mat og myndum í dag
Í dag, laugardaginn 12. apríl kl. 11.00 heldur Fjölmenningarnefnd Reykjanesbæjar kynningu á pólskri menningu í máli, mat og myndum í sal Heiðarskóla.
Það er hópur pólskra íbúa Reykjanesbæjar sem tekið hefur að sér að sjá um kynninguna og hefur verslunin Jumbo, Iðavöllum sem selur pólska matvöru veitt góðan styrk.
Þetta er sjötta kynningin á vegum Fjölmenningarnefndar Reykjanesbæjar og önnur kynningin á tilteknu landi. Á síðasta ári var haldin kynning á Indlandi í máli, mat og myndum sem var vel sótt af íbúum af öllum aldri og vakti mikla hrifningu.
Fjölmenningarefnd Reykjanesbæjar heldur einnig reglulega kynningar á íslenskri menningu og siðum fyrir erlenda íbúa bæjarins.
Pólland hefur vakið athygli fyrir fallegt land, ríka menningu og spennandi matarhefð.
Gert er ráð fyrir að dagskráin standi frá kl. 11.00-13.00 og eru allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Enginn aðgangseyrir og veitingar fríar.