Plötusnúðar mæta til Keflavíkur
Ef þú fékkst að upplifa stuðið á Casino, Kaffi Duus, Castró, N1, Traffic, Skothúsinu,Yello og Hápunktinum á sínum tíma þá ætla tveir af reyndustu plötusnúðum Suðurnesja að snúa á heimaslóðir og troðfylla Center á laugardagskvöldið.
Þetta eru að sjálfsögðu Atli Skemmtanalögga og Stjáni Prestur! Atli skemmtanalögga hefur þeytt skífum í hverri einustu holu á Íslandi og verið aðalplötusnúður hljómsveita á borð við Skítamóral og Sálina hans Jóns míns. Nú starfar hann á útvarpstöðinni K100 og gerir þar gott mót með Svala og félögum! DJ Stjáni eða einfaldlega Stjáni Prestur, eins og flestir þekkja hann, er búinn að þeyta skífum í yfir tíu ár og byrjaði feril sinn í Keflavíkinni. Þeir sem hafa drukkið Woody's þekkja Stjána og vita að ,,Stuð" er hans millinafn.
Herlegheitin byrja á miðnætti næstkomandi laugardagskvöld.