Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Planið er að hjóla frá Snæfellsnesi þvert yfir landið að Seyðisfirði
Sunnudagur 24. maí 2020 kl. 08:54

Planið er að hjóla frá Snæfellsnesi þvert yfir landið að Seyðisfirði

Ingibergur Þór hefur áhuga fyrir fjórhjólum og ætlar í nokkrar slíkar ferðir í sumar.

– Nafn:

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ingibergur Þór Jónasson.

– Fæðingardagur:

22. maí 1976.

– Fæðingarstaður:

Keflavík.

– Fjölskylda:

Fjóla Sigurðardóttir er konan mín. Sigurður Bergvin Ingibergsson og Erna Lóa Ingibergsdóttir eru börnin mín.

– Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór?

Skipstjóri eða ljósmyndari. Hef unnið sem háseti og vélstjóri til sjós en lengra komst ég ekki þar.

– Aðaláhugamál:

Ljósmyndun og að ferðast um landið mitt á hjólinu.

– Uppáhaldsvefsíða:

Aah, þetta er erfitt.

– Uppáhalds-app í símanum:

Lightroom.

– Uppáhaldshlaðvarp:

Ég er nú bara frekar nýr þar en hef verið að hlusta á Góðar sögur og Þvottakörfuna.

– Uppáhaldsmatur:

Soðin ýsa eða í raspi. Svo klikkar naut í Bearnaise aldrei.

– Versti matur:

Soðið hrossakjöt frá afa Leifs Guðjóns.

– Hvað er best á grillið?

Naut.

– Uppáhaldsdrykkur:

Toppur með hvítum tappa.

– Hvað óttastu?

Í raun ekkert en það væri hræðilegt ef það kæmi eitthvað fyrir börnin mín.

– Mottó í lífinu:

Komdu fram við aðra eins og þú vilt að komið sé fram við þig. Gamalt og gott.

– Hvaða mann eða konu úr mannkynssögunni myndir þú vilja hitta?

Ingólf Arnarsson.

– Hvaða bók lastu síðast?

Útkall í hamfarasjó.

– Ertu að fylgjast með einhverjum þáttum í sjónvarpinu?

Tja varla, ég elti flest allt Documentary.

– Uppáhaldssjónvarpsefni:

Lord of the Rings / Documentary

– Fylgistu með fréttum?

Já, ég geri það.

– Hvað sástu síðast í bíó?

Man það ekki!

– Uppáhaldsíþróttamaður:

Óli Óla.

– Uppáhaldsíþróttafélag:

UMFG, gulur í gegn.

– Ertu hjátrúarfullur?

Nei, eiginlega ekki.

– Hvaða tónlist kemur þér í gott skap?

Bara eitthvað hresst. Stjórnin klikkar aldrei.

– Hvað tónlist fær þig til að skipta um útvarpsstöð?

Ópera og dauðarokk.

– Hvað hefur þú að atvinnu?

Ég er atvinnubílstjóri.

– Hefur þú þurft að gera breytingar á starfi þínu vegna COVID-19?

Já, ég tók algjöra U-beygju og er í dag í 50% starfi ef það má kallast 50%.

– Hvernig hefur þú verið að upplifa árið 2020 hingað til?

Frekar leiðinlegt ár þar sem allir hafa þurft að lifa í mikilli óvissu.

– Er bjartsýni fyrir sumrinu?

Þegar við búum við íslenskt sumar þá þarf enga bjartsýni. Þetta verður gott sumar, það er klárt!

– Hvað á að gera í sumar?

Heyrðu, mála húsið, taka ferð með Melrökkum á Hveravelli sem mun taka fjóra daga. Planið er að hjóla frá Snæfellsnesi þvert yfir landið að Seyðisfirði en það kemur í ljós þegar nær dregur. Njóta þess að vera með mínu fólki og svo náttúrlega vinna.

– Hvert ferðu í sumarfrí?

Ég fer austur á Flúðir og mun ferðast innanlands í sumarfríinu

– Ef þú fengir gesti utan af landi sem hafa aldrei skoðað sig um á Suðurnesjum. Hvert myndir þú fara með þá fyrst og hvað myndir þú helst vilja sýna þeim?

Ég myndi fyrst fara með þeim Hópsneshringinn og sýna sem skipsflökin sem standa fyrir innan varnargarðana ásamt því að lesa um sjóslysin sem hafa átt sér stað við Grindavík. Myndi helst vilja sýna þeim Eldvörpin sem eru stórkostleg að sjá.