Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Miðvikudagur 22. desember 1999 kl. 20:13

PÍNULÍTIÐ GEÐVEIKIR

Nonni-sprengja Þegar blaðamaður hitti Frikka var hann á leið í sjónvarpsupptöku á þættinu Nonni-sprengja á Skjá 1. „Þetta er í annað sinn sem ég leik í þessum þætti. Við fáum fullklárað handrit og ég mæti hálftíma fyrir útsendingu í smink. Þátturinn er sendur út í beinni útsendingu og það er margt skondið sem getur gerst. Síðast kom hópur til okkar frá Sláturfélagi Suðurlands. Þau mættu allt of seint og voru alveg á perunni. Skyndilega gekk einn áhorfandinn að Gunnari Helga, stjórnanda þáttarins, og hvíslaði beint í míkrafóninn: „Hvar á ég að sitja?“ Þetta heyrðist náttúrulega í útsendingunni. Áhorfendur köstuðu líka alls konar dóti inná sviðið og voru með köll og læti. Við reyndum að halda okkur við handritið á meðan, en þetta var mjög gaman“, segir Frikki og hlær af öllu saman. Líkaminn er mitt atvinnutæki Frikki er ótrúlega lipur á sviðinu og hann virðist ekki hafa neitt fyrir þessu. Hver er galdurinn? „Það hefur fylgt mér alla æfi að vera fýsískur, þ.e. að geta hoppað og stokkið og látið öllum illum látum án mikillar fyrirhafnar. Hver leikari ber ábyrgð á sjálfum sér og þar sem líkaminn og röddin eru mitt atvinnutæki þá verð ég að halda mér í þokkalegu formi. Leikarar Borgarleikhússins fara þrisvar í viku í leikfimi til Ástrósar Gunnarsdóttur dansara og svo erum við í kór. Ég er líka í tímum hjá Sverri Guðjónssyni, kontratenór, og hann kennir okkur Alexandertækni. Það er sérstök tækni sem hugsuð er fyrir leikara og tónlistarmenn. Þá er okkur kennt að rétta úr líkamanum og beita honum rétt og okkur er líka kennd raddbeiting.“ Djöflarnir Borgarleikhúsið er að fara að setja upp leikritið Djöflarnir eftir Dostojevskí í janúar og Frikki fer þar með hlutverk illmennisins Pjotr Verkhovenskí. Leikstjórnin er töluvert öðruvísi en hann á að venjast því rússneskur leikstjóri, Alexei Borodin, hefur verið fenginn til að setja verkið upp. „Hann er aðalleikstjórinn í stóru leikhúsi í Moskvu. Hann talar mjög litla ensku og er alltaf með túlk með sér. Að vinna undir hans stjórn er mikill skóli fyrir okkur. Hann er mjög vel undirbúinn og vinnur þetta mjög nákvæmlega. Við erum t.d. búin að sitja í mánuð við borð og lesa og stúdera persónurnar. Hann ætlast til að við þekkjum persónurnar út í gegn og leikum þær ekki heldur verðum.“ Að verða önnur persóna Hvernig er að verða einhver annar? „Þegar það tekst þá er það frábært en stundum er ég ekki nógu vel undirbúin. Ef maður yrði 100% einhver önnur persóna á sviði þá myndi maður kallast geðveikur. Ég held að allir leikarar séu e.t.v. pínulítið geðveikir. Hluti af þessu leikaranámi er að losa um hömlur og það fólk sem fer í þessa stétt er að þessu því það vill losa um og gera eitthvað skrítið. Það er einmitt það góða við að vinna í leikhúsi að þar er svo mikið af skemmtilegu fólki.“ Myrðir af nauðsyn Frikki er góðlegur drengur og maður veltir fyrir sér hvernig hann fari að því að verða hreinræktað illmenni á sviðinu. „Þegar maður leikur aðra persónu þá tekur maður meirihlutann frá sjálfum sér og byggir þá á eigin reynslu. Ég held að allt venjulegt fólk réttlæti allar sínar gerðir. Þegar ég leik vonda kalla reyni ég að réttlæta gerðir hans. Ég geri bara það sem ég geri af nauðsyn því það er ekki annað hægt í minni stöðu. Þar af leiðandi drep ég aðra af þeirri einföldu ástæðu að þeir þurfa að deyja. Það er voðalega erfitt að leika persónu sem gerir eitthvað af sér en er alltaf að dæma sjálfan sig. Það gengur ekki upp.“ Bannað að vera veikur Frikki segist ekki eiga erfitt með að koma sér út úr hlutverki og honum líði bara ósköp venjulega eftir sýningar. Hann segist þó hafa verið mjög þreyttur eftir sýningar á Grease en þá þurfti hann að dansa og syngja á sviði í marga klukkutíma á dag. „Það er reyndar algjört helvíti að vera á sviði þegar maður er veikur. Það er eini ókosturinn við þessa vinnu. Ég get ekki hringt inn og sagt að ég sé veikur því það eru 500 manns sem bíða. Leikari verður að vera algjörlega ófær um að tala og margbrotinn til að fá veikindafrí.“ Byrjaði að svitna og skjálfa Það hlýtur að vera martröð hvers leikara að gleyma hvað hanna eigi að segja á sviðinu og Frikki viðurkennir að það geti verið óþægilegt. „Stundum kemur fát á mig og ég reyni þá að spinna einhvern texta. Ég hef sem betur fer aldrei lent illa í því en í Vorið vaknar lenti ég í heldur óþægilegri uppákomu. Ég var á sviðinu ásamt Jóhanni G. og við vorum að spjalla saman. Svo átti Þórhallur Gunnarsson að koma á sviðið og koma inní okkar samræður. Þórhallur kom ekki inn á réttum tíma og Jói hélt bara áfram að bulla eitthvað. Hann lenti í heilmiklum vandræðum með að búa til einhvern texta. Ég byrjaði að svitna og skjálfa því ég var viss um að hann myndi senda boltann yfir á mig. Ég heyrði nefnilega einu sinni sögu af Bessa Bjarna þegar hann gleymdi því sem hann átti að segja á einhverri sýningu. Mig minnir að hann hafi þá bent á Árna Tryggva og sagt: „Sjáið þið hann!“ og allra augu beindust að Árna greyinu sem stóð bara og stamaði.“ Gaman að fljúga um sviðið Í leikhúsi getur margt óvænt gerst í hita leiksins og Frikki segir að margt spaugilegt hafi gerst í Pétri pan. Hann er eitthvað tregur til að segja frá þessu í fyrstu en lætur síðan undan þrýstingi. „Ég var tengdur í tvo víra alla sýninguna því ég þurfti að fljúga um, sem var voðalega gaman. Í upphafi sýningar átti ég að koma fljúgandi inní sjóræningjaskip. Ég var eitthvað seinn að festa vírana og þegar ég er kom fljúgandi inn á sviðið losnaði einn vírinn. Áhorfendur tóku andköf þegar þeir sáu mig koma inn hangandi á hliðinni í einum vír.“ Þetta hljómar illa en Frikki segir að fallið hefði ekki verið nema um 2-3 metrar ef hann hefði losnað alveg. Ég held að venjulegu fólki finnist það meira en nóg en Frikki vílar greinilega ekkert fyrir sér. Hann lenti líka einu sinni í því að hverfa óvænt af sviðinu. „Ég átti að stökkva uppí gluggasyllu með Skellibjöllu í hendinni. Ég stökk upp en var eitthvað slappur, missti jafnvægið og hrundi út um gluggann og hann lokaðist á eftir mér. Pétur pan hvarf semsagt mjög skyndilega af sviðinu svo klöngraðist ég aftur uppí gluggann og allir í salnum skellihlógu“, segir Frikki og hlær af minningunni. En hvert stefnir þessi ungi og hæfileikaríki leikari? „Ég er að bíða eftir góðu nettilboði til Hollywood“, segir Friðrik glettnislega að lokum. segir Friðrik Friðriksson um leikara Friðrik Friðriksson er ungur leikari úr Njarðvíkunum. Hann úskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands 1998 og hefur haft nóg að gera síðan. Hann gerði garðinn frægan á sviði Borgarleikhússins sem Pétur pan en hann hefur einnig fengist við fleiri stór hlutverk og hlotið lof fyrir m.a. aðalhlutverkið í leikritinu Vorið vaknar og stór hlutverk í Ofanljósi og Geimskipið Hnetan. Frikki er í sambúð með Maríu Rut, sem er Keflvíkingur. Þau kynntust þegar þau léku ólánsama elskendur í leikriti sem Vox Arena, leikfélag FS, setti upp fyrir nokkrum árum.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024