Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Pínu stressuð fyrir keppnina
Fimmtudagur 27. nóvember 2003 kl. 15:02

Pínu stressuð fyrir keppnina

-segir Sandra Þorsteinsdóttir sem sigraði Hljóðnemann, söngvakeppni Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

Sandra Þorsteinsdóttir nemandi við Fjölbrautaskóla Suðurnesja sigraði í Hljóðnemanum, söngvakeppni skólans sl. fimmtudag. Alls tóku 16 nemendur þátt í keppninni og að sögn Magnúsar Kjartanssonar formanns dómnefndar var keppnin hörð. Söngvakeppnin var haldin í Stapanum og var fullt út úr dyrum og mikil stemmning í salnum. Hljómsveitin Safnaðarfundur eftir messu spilaði undir söng á söngvakeppninni og á ballinu sem einnig var haldið í Stapa spilaði hljómsveitin Tvö dónaleg haust. Sandra mun keppa fyrir hönd Suðurnesjamanna í Söngvakeppni framhaldsskólanema sem haldin verður eftir áramótin.


Hvaða lag söngstu á Hljóðnemanum?
Ég söng lag úr söngleiknum Rocky Horror sem heitir Komdu við mig.
    
Bjóstu við að vinna?
Nei alls ekki!  Þetta átti bara að vera djók.

Hefurðu lært söng?
Ég var í námi í tónlistarskólanum hér í Keflavík en hætti svo en og tók ekkert stig.

Syngurðu í sturtu?
Já hver gerir það ekki?

Ertu stressuð fyrir þátttöku í Söngvakeppni framhaldsskólanema?
Já það er alltaf pínulítið stress í manni fyrir eitthvað svona.

Nú var Arnar Dór rekinn úr Idol vegna viðtals við Víkurfréttir. Ertu hrædd um að verða rekin úr söngkeppni framhaldsskóla vegna þessa viðtals:)?
Nei ég býst ekki við því en maður veit samt aldrei.

Hvað er svo framundan hjá þér?
Ég ætla að klára skólann og  byrja aftur í söngnámi. Ég er líka í Leikfélagi Keflavíkur og við erum að fara að setja upp barnaleikrit.

Ef að þér byðist að syngja með hvaða söngkonu/söngvara sem er fyrir 50.000 áhorfendur í Covent Garden í London - hvern myndirðu velja?
Elton John .

Eitthvað að lokum?
Nei nei.


VF-ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson: Sigurvegarinn Sandra Þorsteinsdóttir flutti sigurlagið í lok keppninnar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024