HSS
HSS

Mannlíf

Píanóleikarinn og tónskáldið Sævar Jóhannsson með nýtt lag og tónleika á sunnudaginn
Föstudagur 13. júní 2025 kl. 10:43

Píanóleikarinn og tónskáldið Sævar Jóhannsson með nýtt lag og tónleika á sunnudaginn

Tónskáldið og Píanóleikarinn Sævar Jóhannsson hefur nýlega gefið út nýtt lag sem hann nefnir Austurgata en lagið er á væntanlegri plötu, Quiet Presence, sem kemur út í nóvember. Ekki nóg með að Sævar sé með nýtt lag, á sunnudag heldur hann svo tónleika í Keflavíkurkirkju.

Austurgata kom út 4. júní og fjallar lagið um reynslu hans í tónlistarskólanum og hve mikilvægur þáttur sú reynsla var í lífi hans. Lagið er nefnt eftir götunni þar sem skólinn var til húsa í gamla daga. Lagið vekur upp minningar hjá Sævari við að spila í lúðrasveit og léttsveit einu sinni í viku, að mynda vináttubönd með því að spila saman og finna fyrir tengslum í gegnum tónlistina. Austurgata er nostalgísk hugleiðing hans um fyrstu tónlistarminningar sínar. Sævar býður hlustandanum að minnast á gleðina yfir því að vera í námi, minnir á styrkinn í því að taka áhættur og að mynda vináttu og innihaldsrík tengsl í gegnum tónlistina.

Á tónleikunum í Keflavíkurkirkju á sunnudaginn mun Sævar bæði leika ný lög af væntanlegri plötu og eldri lög í bland. Frítt er á tónleikana sem hefjast kl. 17, sunnudaginn 15. júní.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Austurgata á Spotify: