Pétur Jóhann óheflaður í Hljómahöll
Hinn eini sanni Pétur Jóhann Sigfússon ætlar að skella sér suður með sjó með sýninguna sína „Pétur Jóhann óheflaður“ föstudagskvöldið 21. nóvember og skemmta í Hljómahöll.
Það er ekki á hverjum degi sem að þessi fáránlega fyndni og prýðisgóði piltur er með uppistand öllum opið og hvað þá í Reykjanesbæ.
Pétur er eins og alþjóð veit gríðarlega skemmtilegur og eftirsóttur uppistandari. Þar að auki hefur hann unnið marga og stóra sigra í kvikmyndum og sjónvarpi.
Sýningin PÉTUR JÓHANN ÓHEFLAÐUR er tveggja klukkustunda uppistandssýning samin af Pétri sjálfum. Síðustu mánuði hefur hann flakkað um landið með þessa sýningu og fyllt hvert húsið á fætur öðru.
Nánari upplýsingar á www.hljomaholl.is.