Mannlíf

Pétur Jóhann í Reykjanesbæ
Mánudagur 9. október 2023 kl. 11:27

Pétur Jóhann í Reykjanesbæ

Pétur Jóhann ætlar að taka léttan rúnt um landið í vetur og græta landan úr hlátri. Í þetta skiptið verður Pétur með splunkunýtt efni þar sem hann fer um víðan völl og lætur gamminn geysa. Einnig má gera ráð fyrir að kötturinn, Gunnþór og fleiri snillingar líti við.

Ef þér finnst gaman að hlæja og skemmta þér konunglega í rúmar 2 klst, þá er þetta málið.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Fyrri uppistandssýningar Péturs (Óheflaður & óhæfur) nutu gríðarlegra vinsælda og voru báðar mjög langlífar.

Þeir sem eru á póstlista Hljómahallarinnar komast fram fyrir röð og geta keypt núna.

Almenn miðasala hefst mánudaginn 9. október kl 10:00.

Miðaverð aðeins 5.990 kr.