Páskabingó samfleytt í 45 ár í Vogum
Félagsandinn sveif yfir vötnum þegar árlegt Páskabingó Þróttar fór fram fyrir fullu húsi á mánudaginn var. Vogabúar, brottfluttir, foreldar, iðkendur, félagsmenn, fyrrum félagsmenn og aðrir Þróttarar fjölmenntu.
Páskabingó UMFÞ er stór þáttur í páskahátíð Vogabúa og hefur farið fram samfleytt sl. 45. árin og ávallt vel sótt. Bingóstjórar kvöldsins voru Arnar Egill og Hlynur Freyr.