Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Para- og hjónaklúbbur: Stofnfundur í kvöld
Þriðjudagur 11. apríl 2006 kl. 16:45

Para- og hjónaklúbbur: Stofnfundur í kvöld

Nokkrar ungar konur í Reykjanesbæ hafa ákveðið að stofna para- og hjónaklúbb þar sem ætlunin er að hressa upp á félagslífið í bænum. Þær hafa ákveðið að halda stofnfund klúbbsins á Yello í kvöld, þriðjudag, kl. 20.

„Við fengum hugmyndina frá Grindavík þar sem hafa verið starfandi tveir svona klúbbar og okkur langaði til að brydda upp á einhverju slíku hér. Við erum að vonast til þess að fólk sé tilbúið að standa upp úr sófanum og gera eitthvað skemmtilegt í góðum hópi. Við ætlum að vera með einhverskonar uppákomur 4 til 6 sinnum á ári. Það geta til dæmis verið ferðir í keiluhöllina eða þvílíkt, en svo verða líka tvö böll á ári. Í raun eru möguleikarnir óendanlegir, en það ræðst allt af því hversu margir eru reiðubúnir til að taka þátt."

Þær stöllur hafa ákvarðað lágmarksaldur á inngöngu og miða við að samanlagður aldur para eða hjóna sé að minnsta kosti 50 ár. Annars eru allir velkomnir og þá sérstaklega þau sem eru nýflutt í bæinn. „Það er rosalega gott að geta komið inn í svona hóp þegar maður er nýr og þá er mun auðveldara að koma sér inn í samfélagið," segja dömurnar og skora að lokum á alla að slá til og mæta á stofnfundinn.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024