HSS
HSS

Mannlíf

„Ótrúlegur kraftur í þessum krökkum“
Laugardagur 9. desember 2017 kl. 07:00

„Ótrúlegur kraftur í þessum krökkum“

- Fullt af hæfileikaríkum söngvurum á Suðurnesjunum

Það er sannkölluð jólavertíð hjá Arnóri B. Vilbergssyni kórstjóra en hann stjórnar Vox Felix, Kór Keflavíkurkirkju og Eldey, kór eldri borgara á Suðurnesjum. Arnór er mikið jólabarn, er nýbúinn að kaupa jólaskraut sem hann á reyndar eftir að setja upp. Hann viðurkennir það að hann gæti verið meira heima um jólin og lofar að það komi að því von bráðar. Jólin eru að hans sögn frábær tími.

Hæfileikaríkir söngvarar í Vox Felix
„Við erum að halda jólatónleika í fjórða skiptið í ár. Þetta er ótrúlega gaman og það er líka svo gaman að syngja jólalögin sem maður er alltaf að heyra í útvarpinu. Krafturinn í þessum krökkum er ótrúlegur. Við erum líka með flotta tónlistamenn með okkur en við erum svo rík í þessum hóp að það eru hljóðfæraleikarar í hópnum okkar og fáum einn lánsmann en það er bassaleikarinn. Þessir krakkar eru frábærir og geta gert hvaðeina.“

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Hvetur karlmenn til að koma í kórastarf
„Við „lentum“ í því að taka þátt í Kórar Íslands og þurftum að vera á Stöð 2 í sjónvarpinu í nóvember,“ segir Arnór og hlær. „Það var frábær tími og gerði ótrúlega gott fyrir okkur, hópurinn þjappaðist saman og við erum eins og samloka með roastbeef eftir þetta ævintýri. Við erum orðin svo þétt og fín og allir eru einbeittir í dag, það er mikill munur á hópnum eftir þessa reynslu. Það er líka svo ótrúlegt hvað gerist eftir tónleika eða þátt eins og Kórar Íslands, það bætist alltaf í hópinn eftir því sem við komum oftar fram sem er frábært. Við þurfum samt að hafa svolítið fyrir því að fá karlmenn til okkar en þannig er það í öllu söngstarfi. Ég hvet karlmenn á svæðinu að koma í þá kóra sem eru hér í kring.“

Margir skápasöngvarar á svæðinu
„Hér á Suðurnesjum er fullt af skápasöngvurum sem eiga að stíga fram og prófa, ég held að fólk haldi að þegar það fari í kór sé bara verið að horfa á það en þannig er það ekki, þú getur alveg falið þig fyrst um sinn. Þetta er hópur að syngja saman og maður getur alveg læðst inn í þessa hópa.“ Arnór segist ekki setja pressu á fólk fyrst um sinn en vilji þó að sjálfsögðu sjá árangur eftir einhvern tíma. „Í Kór Keflavíkurkirkju erum við með raddþjálfara sem raddþjálfar og við ætlum að reyna að fá raddþjálfun í Vox Felix eftir áramót. Þau syngja öðruvísi heldur en aðrir kórar því þau syngja svokallaðan brjóst-tón á meðan hinir nota höfuðtón.“