Ótrúlega skemmtileg upplifun
Stjörnur, snekkjur og strendur í Cannes
Keflvíkingurinn Elín Inga Ólafsdóttir heimsótti nýlega hina heimsfrægu kvikmyndahátíð í Cannes í Frakklandi. Hátíðin sem haldin hefur verið allar götur síðan 1939 er ein af virtustu kvikmyndahátíðum heimsins og þangað flykkjast Hollywoodstjörnurnar til þess að kynna bíómyndirnar sínar og skemmta sér á ströndinni. Hátíðin þykir afar mikilvæg í kvikmyndabransanum en þarna eru myndir annað hvort teknar í sátt af þeim sem skipta máli, eða hreinlega teknar af lífi. Það er því mikið í húfi.
Elín Inga sem er mikil áhugamanneskja um kvikmyndir fór ásamt frönskum kærasta sínum á hátíðina en þau kynntust einmitt fyrir þremur árum á annarri kvikmyndahátíð í franska bænum St. Tropez á frönsku Riveríunni. Kærastinn, sem heitir Djamal Mohamed er sjálfur kvikmyndagerðarmaður og er búsettur í Parísarborg. Hann hafði heimsótt hátíðina fjórum sinnum áður, en Elínu hafði lengi dreymt um að fara, enda hefur hún verið dugleg að sækja kvikmyndahátíðir í gegnum tíðina.
Reglulega fer Elín til Frakklands að hitta kærastann og er hún því dugleg að kanna hvort ódýr flug séu í boði til landsins. Hún datt inn á ódýrt flug fyrir tilviljun og ákvað því að skella sér þetta árið á kvikmyndahátíðina í Cannes. Hún athugaði hvort kærastinn gæti ekki útvegað gistingu og síðan var brottför ákveðin. Elín segir að þetta sé ekki ósvipað því sem gerist á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Öll gisting sé fljótlega uppbókuð og verður gistipláss mjög dýrt á meðan á hátíðinni stendur. Djamal og vinir hans leigja því íbúð margir saman og svo er sofið á víð og dreif um íbúðina.
Alger paradís þar sem ríka fólkið leikur sér
„Þetta er alger paradís. Flottar byggingar og strendur og mikið af ríku fólki sem býr þarna.“ Elín segir að Cannes geri mikið út á það að halda ýmsar hátíðir og ráðstefnur og allan ársins hring er nóg um að vera í borginni. Það sló hana þó nokkuð að mikið af fátæku fólki hafi verið á götum borgarinnar en það mætti líklega rekja til þess að kvikmyndahátíðin hafi verið í gangi. Kvikmyndahátíðin í Cannes var fyrst og fremst frönsk hátíð hér áður fyrr en undanfarið hafa Bandaríkjamenn verið að sækja hátíðina í auknum mæli enda er kvikmyndaiðnaðurinn hvað stærstur þar í landi. „Allt þjónustufólk talar mjög góða ensku, sem er mjög óvenjulegt í Frakklandi,“ segir Elín en þess er hreinlega krafist enda er ferðamannaiðnaðurinn blómlegur í borginni.
Djamal og vinur hans fengu passa á hátíðina sem veitti þeim aðgang að kvikmyndum og ýmsum viðburðum en það tók dágóðan tíma að útvega passa fyrir Elínu. Almenningur getur í raun ekki keypt sér passa á kvikmyndir á hátíðinni en hún er fyrst og fremst ætluð þeim sem eru í „bransanum“. Að lokum tókst að útvega passa fyrir Elínu en hún segir að þar hafi þau í raun komist inn bakdyramegin með smá krókaleiðum. Elín fór á þrjár kvikmyndir á hátíðinni og voru þær að hennar sögn misgóðar. Hún segir að kvikmyndagestir hafi líka verið alls óhræddir við það að labba hreinlega út af myndunum ef þeim líkaði ekki það sem boðið var upp á. Að auki hikuðu kvikmyndagestir ekki við að klappa líkt og þeir væru í leikhúsi eftir áhugaverðar senur. Hún segir að hátíðin gangi út á það að finna sem flestar óvenjulegar myndir og því ekki nema furða að sumar falli ekki í kramið. „Það er bara gaman að fá tækifæri til þess að sjá slíkar myndir sem vanalega rata kannski ekki til Íslands.“ Elín hitti fyrir fólk frá Íslandi sem var m.a. á vegum Bíó Paradís í Reykjavík. Þar er væntanlega von á myndum frá hátíðinni til sýninga í haust.
Gott að leggja sig yfir sumum myndunum
Klæðnaður skiptir miklu máli á hátíðinni en karlmenn verða að vera í smóking og þá helst svörtum. Konur þurfa að vera í síðkjólum og á háum hælum. Elín klæddist glæsilegum kjól frá langömmu sinni á hátíðinni. „Það var gaman að vera í svona antík-kjól á meðan stjörnurnar voru í því nýjasta frá topphönnuðunum,“ en kjóllinn er yfir 40 ára gamall. Þau Djamal fóru á kínverska mynd, A Touch of Sin, þegar þau klæddu sig upp í sitt fínasta púss en Elín segir þá mynd hafa verið mjög þunga, og í raun kjörið tækifæri til þess að ná í smá svefn. „Við skipumst á að sofna yfir þeirri mynd. Hún var ekki sú mest spennandi og við höfðum sofið lítið næturnar áður. Það kom sér í raun vel að leggja sig aðeins, því við þurftum yfirleitt að fara í einhverjar veislur eftir myndirnar sem sýndar voru um klukkan 11 að kvöldi til,“ segir Elín og hlær.
Nokkuð er um að stórar veislur séu haldnar á einkaströndum og á snekkjum en þá eru það yfirleitt stór fyrirtæki sem borga brúsann hvað varðar mat og drykk. Elín og Djamal sóttu eina slíka veislu á snekkju en það segir Elín hafa verið sérstaka reynslu. „Þetta var ekki alveg svona tryllt bátapartý sem maður hefur heyrt um, enda var þar mikið af miðaldra fólki“ en sú veisla var í boði sjónvarpsstöðvar í Frakklandi. Annars segir Elín hátíðina vera mikla veislu og fyrir þá sem vilja sletta úr klaufunum þá sé þetta staður við þeirra hæfi.
Hitti barnsmóður Forrest Gump
Elín segist ekki mikið hafa orðið vör við fræga fólkið á hátíðinni. Hún sótti þó samkvæmi þar sem leikkonan Robin Wright var meðal gesta. Hún er líklega hvað þekktust fyrir hlutverk sitt sem ástkona Forrest Gump í samnefndri kvikmynd, en nýlega hefur hún vakið athygli í sjónvarpsþáttunum House of Cards. „Ég þekkti hana eiginlega ekki í útliti og fannst frekar kjánalegt að fara að nálgast hana eða tala við hana. Ég er frekar feimin og ég hefði ekkert vitað hvað ég hefði átt að segja við hana.“ Hún segir að fræga fólkið sem sækir hátíðina sé þarna til þess að vinna og kynna þær myndir sem það leikur í. Það sé ekki mikið að sækjast í sviðsljósið að óþörfu.
„Fyrir mig sem venjulega manneskju sem er ekki í kvikmyndabransanum þá var þetta alveg ótrúlega skemmtilegt upplifun,“ segir Elín sem getur vel hugsað sér að heimsækja Cannes aftur enda hafi fegurð staðarins heillað hana upp úr skónum.