Bygg
Bygg

Mannlíf

Ótrúleg saga trés
Mánudagur 20. september 2010 kl. 10:59

Ótrúleg saga trés


Fyrir 25 árum var Sveinn Guðnason að setja niður kartöflur á Miðnesheiði þegar hann rakst á jólatré sem einhver hafði losað sig við á heiðinni eftir jólin. Örlög trésins virtust ráðin þar sem það barst fyrir veðri og vindum í berangrinu. Sveini fannst tréð eitthvað umkomulaust í vindinum, stakk því niður í moldarbarð og setti áburð í kring. Og það ótrúlega gerðist - tréð náði að festa rætur og er núna, 25 árum seinna, orðið hið myndarlegasta barrtré um átta metrar á hæð.
Að sögn fólks sem þekkir til skógræktarmála eru afar litlar líkur á því að gróðusetning sem þessi beri árangur en það hefur heldur betur gerst í þessu tilviki. Á myndinni er Sveinn við tréð í sumar og eins og sjá má er það hið virðulegasta.

Bílakjarninn
Bílakjarninn