Bygg
Bygg

Mannlíf

Öskudagur í dag
Miðvikudagur 21. febrúar 2007 kl. 11:59

Öskudagur í dag

Í dag er einn stærsti nammidagur ársins, Öskudagur. Ungviðið er komið á kreik í allra  kvikinda líki og eru búningarnir hinir fjölskrúðugustu eins og jafnan áður. Athygli vekur að ekki örlar nú á því gerfi sem var hvað vinsælast í fyrra, þ.e. Sylvíu Nótt. Hún er horfin sem og öskudagspokarnir sem á árum áður voru hengdir aftan á fólk. Krakkarnir fara þessa stundina  á milli fyrirtækja þar sem fólk fær notið söngs sem verðlaunaður er með einhverju góðgæti.

Eftir hádegi verður hefðbundin öskudagsskemmtun í Reykjaneshöllinni frá kl. 14 - 16 fyrir nemendur í  1. – 6. bekk. Foreldrar eru hvattir til að taka þátt í skemmtuninni með börnun sínum ef því verður við komið.

Umferðarstofa hvetur ökumenn  til að sýna sérstaka aðgát í dag vegna þess fjölda barna sem fer um göturnar í nammileit.

Mynd: Þessir glaðlegu krakkar voru með þeim fyrstu sem komu á skrifstofu Víkurfrétta í morgun.
Bílakjarninn
Bílakjarninn