Öskudagshátíð í Reykjaneshöll
Miðvikudaginn 13. febrúar verður haldin öskudagshátíð fyrir 1. - 6. bekk. í grunnskólum Reykjanesbæjar í Reykjaneshöllinni. Hátíðin stendur yfir frá kl. 14:00 til kl. 16:00.
Nemendur mæti í Reykjaneshöll við Flugvallarveg. Dagskráin verður með hefðbundnum hætti: „Kötturinn“ sleginn úr tunnunni, hoppukastalar, leikir, dans, glens og grín.
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar heldur utan um framkvæmdina. Foreldrar yngri barna eru beðnir um að taka virkan þátt í þessari skemmtun og aðstoða börnin. Ömmur og afar eru sérstaklega boðin velkomin.