Öskudagshátíð í Reykjaneshöll
Á morgun verður haldin öskudagshátíð fyrir 1. - 6. bekk í Reykjaneshöll, en hátíðin stendur frá klukkan 14 til 16. Dagskráin verður með hefðbundnum hætti: „kötturinn“ sleginn úr tunnunni, leikir, dans, glens og grín. Ekki verða veitt verðlaun fyrir búninga. Að hátíðinni stendur Tónlistarskóli Reykjanesbæjar. Foreldrar yngri barna eru beðnir um að taka virkan þátt í þessari skemmtun og aðstoða börnin. Sjoppa verður á staðnum.