Mannlíf

Öskubuska Heiðarskóla í almennar sýningar
Mánudagur 23. mars 2015 kl. 09:31

Öskubuska Heiðarskóla í almennar sýningar

Hæfileikaríkur hópur nemenda úr 9. og 10. bekk Heiðarskóla frumsýndi söngleikinn um Öskubusku á árshátíð elsta stigs sl. föstidag. Leikritið er bráðskemmtileg nútímauppfærsla á hinu klassíska ævintýri.

Leikgerðin er samin af Írisi Dröfn Halldórsdóttur en auk hennar settu þær Guðný Kristjánsdóttir og Gunnheiður Kjartansdóttir sýninguna á svið Frumleikhússins hér um árið. Guðný Kristjánsdóttir og María Óladóttir eru leikstjórar verksins.

Almennar sýningar verða á sal skólans sem hér segir:

Mánudagur 23. mars kl. 20.00

Miðvikudagur 25. mars kl. 17.30 og 20.00

Fimmtudagur 26. mars kl. 20.00

Miðaverð er 1000 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir grunnskólanemendur. Sýningin stendur yfir í rúma klukkustund.

Public deli
Public deli