Óskað eftir umsækjendum um styrki
- úr Umhverfissjóði Fríhafnarinnar. Lengdur umsóknarfrestur.
Umhverfissjóður Fríhafnarinnar auglýsir eftir umsóknum vegna styrkja á sviði umhverfismála.
Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til og með 24. mars 2014.
Sjóðurinn er fjármagnaður með sölu poka í Fríhöfninni og er tilgangur hans að styrkja samstarfsverkefni í umhverfismálum, sem byggjast á sjálfboðaliðastarfi, frumkvæði félagasamtaka eða einstaklinga í hreinsun, verndun gróðurs, ræktun og verndun svæða eða plöntu- og dýralífs með áherslu á nærsvæði Fríhafnarinnar.
Sjóðurinn var stofnaður í maí árið 2012 og 5 krónur af hverjum seldum plastpoka renna í sjóðinn.
Árið 2013 sóttu fjölmargir um í sjóðinn, en ákveðið var að veita sex aðilum styrk í fjölbreytt uppbyggingar- og hreinsunar verkefni á mismunandi sviðum. Fríhöfnin stuðlaði að hreinsun strandlengjunnar sem Golfklúbbur Suðurnesja stýrði, áhugahópurinn Heiðafélagið gróðursetti furur á Miðnesheiðinni, UMFN gróðursetti tré við keppnis- og æfingasvæði deildarinnar í Njarðvík, Lionsklúbbur Njarðvíkur setti niður plöntur og fjölgaði bekkjum og borðum við útvistarsvæðið Paradís, Skógræktar- og landgræðslufélagið Skógfell kom upp aðstöðu á svæði Háabjalla til þess að taka á móti leik- og grunnskólabörnum úr Vogum og Blái herinn fékk styrk sem nýttist í hreinsunarverkefni og til fræðslu í leikskólum.
Áhugasamir eru hvattir til þess að sækja um styrki á heimasíðu Fríhafnarinnar.