Óska eftir tilnefningum til menningarverðlauna
Samkvæmt venju verða menningarverðlaun Grindavíkurbæjar afhent í menningarvikunni sem haldin verður 9.-17. mars næstkomandi. Óskað er eftir tilnefningum frá bæjarbúum á netfangið [email protected], í síðasta lagi 28. febrúar næstkomandi.
Verðlaunin geta verið veitt einstaklingi, stofnun eða samtökum sem viðurkenning fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar. Hlutverk verðlaunanna er m.a. að vera almenn hvatning til eflingar menningar- og listastarfs í sveitarfélaginu. Tilnefningunni skal fylgja rökstuðningur.
Eftirtaldir hafa fengið menningarverðlaun Grindavíkurbæjar:
2010 - Saltfisksetur Íslands í Grindavík og Ómar Smári Ármannsson fyrir örnefna- og minjakort.
2011 - Aðalgeir og Kristinn Jóhannssyni fyrir öflugt menningarlíf á kaffihúsinu Bryggjunni.
2012 - Þorbjörn hf. fyrir mina- myndasýningu fyrirtækisins.