Bygg
Bygg

Mannlíf

Ósátt við munnsöfnuð á íþróttaleik
Mánudagur 7. apríl 2008 kl. 12:45

Ósátt við munnsöfnuð á íþróttaleik

Lesandi Víkurfrétta hafi samband við ritstjórn og vildi koma á framfæri hneykslun sinni á munnsöfnuði sem áhorfendur höfðu frammi á körfuboltaleik Keflavíkur og ÍR í gær.

Hún var á leiknum með tvö börn með sér og sagði að hún hafi oft þurft að grípa fyrir eyrun á börnunum þegar verstu gusurnar gengu yfir. Engu breytti þó hún bæði mennina að taka tillit til barnanna.

Fannst henni þó verst að sjá menn sem voru með börnin sín með sér og hegðuðu sér á þennan hátt. Ættu fullorðir stuðningsmenn liðanna að ganga fram með góðu fordæmi, sérstaklega þegar þeirra eigin börn eru viðstödd.

Mynd frá leiknum í gær.

Bílakjarninn
Bílakjarninn